• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Fluttur á sjúkrahús með áverka eftir eggvopn

ritstjorn by ritstjorn
27. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Helstu tíðindi LRH frá tímabilinu 17:00 – 05:00 eru þessi:

  • Þremur rafmagnshlaupahjólum stolið úr starfsmannaaðstöðu í verslun í hverfi 101.
  • Ökumaður staðinn að því að virða ekki stöðvunarskyldu. Hann reyndist einnig vera án gildra ökuréttinda.
  • Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna ásamt því að vera sviptur ökuréttindum.
  • Umferðaróhapp í miðborginni þar sem að tvær bifreiðar lentu saman. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar ók á brott af vettvangi. Lögregla náði tali af meintum ökumanni sem að verður kærður fyrir að vanrækja að tilkynna lögreglu um slys.
  • Aðili handtekinn á fjórða tímanum, á stigagangi í fjölbýlishúsi. Aðilinn sem að býr í húsinu hafði haldið vöku fyrir öðrum íbúum alla liðlanga nóttina með öskrum, tónlistarhávaða, hurðarskellum og umgang á stigagangi, ónæði í dyrasíma og grýta til matarleifum á stigaganginum. Hann var vistaður í fangaklefa.
  • Tilkynnt um slagsmál tveggja manna. Lögregla fór á vettvang og hitti á annan þeirra. Sá var fluttur á sjúkrahús með áverka eftir eggvopn.
  • Tilkynnt um innbrot í fyrirtæki.
  • Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna ásamt því að vera sviptur ökuréttindum.

Stöð 2 Hafnarfjörður-Garðbær-Álftanes

  • Tilkynnt um líkamsárás þar sem að þrír aðilar veittust að einum. Lögregla fór og ræddi við árásarþola.
  • Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Færður á lögreglustöð í sýnatöku.
  • Bifreið ekið utan í vegrið. Engin slys á fólki en bifreiðin var tjónuð.

 Stöð 3 Kópavogur og Breiðholt.

  • Umferðaróhapp þar sem að bifreið var ekið aftan á aðra bifreið. Talið er færð hafi spilað inn í en hálka og snjór var á vettvangi. Einn aðili var fluttur á bráðamóttöku með sjúkrabifreið.

Stöð 4 Grafarvogur-Mosfellsbær-Árbær.

  • Tilkynnt um innbrot í geymslu í hverfi 112.
  • Tilkynnt um aðila sem að var staðinn að því stela hnífum úr verslun og fela þá innan klæða. Lögregla fór á vettvang og handtók aðilann. Hann var eftirlýstur fyrir annað afbrot fyrr um daginn. Hann gistir nú í fangageymslu.
  • Tilkynnt um aðila sem að brotið hafði innanstokksmuni í íbúð og veist að öðrum á vettvangi. Lögregla fór á vettvang og handtók gerandann.

Mannslát, fjöldi stungu­áverk­a – Meintir gerendur á táningsaldri

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?