Samgöngustofa hefur hætt að innheimta bifreiðagjöld. Nú þarf að greiða bifreiðagjöld af ökutækjum án milligöngu Samgöngustofu. Ganga þarf frá greiðslu þeirra áður en hægt er að ljúka skráningu eigendaskipta hjá Samgöngustofu. Sama á við varðandi greiðslu vanrækslugjalda, viðskiptavinir þurfa einnig að leita til annara stofnana til að greiða þau.
Seljendum ökutækja er bent á að greiða kröfur vegna bifreiðagjaldanna í heimabanka. Athugið að tekið getur einn virkan dag frá því greiðsla er gerð þar til upplýsingar um greiðsluna skila sér til Samgöngustofu.
Umræða