Lítil flugvél sem nauðlenti á Suðurlandsvegi, austan við Hólmsheiði, seint í gærkvöld hafði áður millilent á Reykjavíkurflugvelli, en förinni var heitið til Bretlands. Þetta sagði Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við fréttastofu rúv í morgun.
Hún sagði að vélinni hefði verið flogið frá Bandaríkjunum en gat ekki staðfest hvort flugmaðurinn hefði verið þaðan. Hann hefði komið við á Reykjavíkurflugvelli til að taka eldsneyti. Flugmaðurinn var einn um borð og slapp ómeiddur.
Greint var frá því í morgun að vélin hefði orðið vélarvana og nauðlent. Ekki liggur fyrir hvað fór úrskeiðis og rannsóknin er á upphafsreit, að sögn Ragnars Guðmundssonar, á flugsviði rannsóknarnefndar samgönguslysa. Hann sagði að vettvangsrannsókn hefði lokið í nótt og flakið verið flutt í skýli þar sem það verði rannsakað.
Umræða