• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lækningatæki afhent í Úganda

Frá afhendingu búnaðarins. Hildigunnur Engilbertsdóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala ásamt fulltrúum UNPFA, heilbrigðisráðuneytis Úganda og utanríkisráðuneytis Íslands.

Lækningatæki afhent í Úganda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. maí 2025
in Fréttir, Ýmsar fréttir
A A
0

Sendiráð Íslands í Kampala hefur afhent völdum heilbrigðisstofnunum í Úganda mikilvæg lækningatæki og búnað til meðferðar á konum sem þjást af fæðingingarfistli. Áfanginn er liður í verkefni sem Ísland styður í gegnum Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) en markmið þess er að vinna gegn fæðingarfistli og styðja konur sem þjást af þeim sökum til að fóta sig á ný í samfélaginu.

Fæðingarfistill er alvarlegt og viðvarandi vandamál í fátækustu ríkjum heims en kvillinn þekkist varla á Vesturlöndum. Orsök fæðingarfistils er rifa í fæðingavegi sem ekki er meðhöndluð. Mikil skömm fylgir þessum áverka og algengt að konur sem glíma við hann hætti samfélagsþátttöku með tilheyrandi afkomubresti. Það er því til mikils að vinna fyrir þær að fá bót meina sinna.

Búnaður sem hefur mikla þýðingu

Það var hátíðleg stund þegar fulltrúar sendiráðs Íslands í Kampala, utanríkisráðuneytisins og UNFPA tóku á dögunum þátt í afhendingu á bæði búnaði og lækningatækjum á aðalheilsugæslustöð Namayingo, samstarfshéraðs Íslands. Tækin og búnaðurinn verða notuð til aðgerða á fæðingarfistli á heilsugæslustöðvum í héraðinu og sjúkrahúsinu í borginni Jinja. Afhending er liður í svonefndu STOP-verkefni sem Ísland hefur stutt við í gegnum UNFPA frá því í ársbyrjun 2024.

„Búnaðurinn sem við afhentum er af ýmsu tagi, allt frá hlífðarfatnaði upp í fullkomin skurðarborð og lækningatæki til að greina og meðhöndla fæðingarfistil. Heilbrigðisstofnanir í Úganda, ekki síst til sveita, búa við viðvarandi skort og því á varningurinn sem við afhentum eftir að hafa mikla þýðingu við meðhöndlun kvenna sem þjást vegna fæðingarfistils,“ segir Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala.

Stuðningur sem skiptir sköpum

Samhliða afhendingunni var efnt til sérstaks átaks á heilsugæslustöðinni þar sem konum úr héraðinu gafst tækifæri til þess að gangast undir aðgerð við fæðingarfistli sér að kostnaðarlausu. Um leið kynntu fulltrúar sendiráðsins og utanríkisráðuneytisins sér framvindu verkefnisins og ræddu meðal annars við konur sem þjáðst hafa af fæðingarfistli en fengið endurhæfingu og stuðning við að fóta sig í samfélaginu á ný.

„Ein þeirra kvenna sem ég ræddi við hafði þjáðst af fæðingarfistli í 28 ár og verið fyrir vikið utanveltu í samfélaginu. Fyrir tilstuðlan verkefnisins gekkst hún undir aðgerð í fyrra. Í framhaldinu fékk hún fjárstuðning til að leigja sér dálítið ræktarland og kaupa geit og þannig koma undir sig fótunum aftur. Það hefur heldur betur tekist og nú er hún meira að segja orðin gjaldkeri þorpsstjórnarinnar eftir að hafa sigrað í kosningum. Stuðningur Íslands hefur þannig gjörbylt lífi þessarar konu,“ segir Hildigunnur.

Ísland fjármagnar svipuð verkefni með UNFPA í Malaví og Síerra Leóne. Með stuðningi við verkefnið í Úganda leggur Ísland því sitt af mörkum í að berjast gegn fæðingarfistli í öllum tvíhliða samstarfsríkjum sínum á sviði þróunarsamvinnu.

Fulltrúar Íslands hafa á undanförnum dögum jafnframt kynnt sér framgang tveggja nýrra verkefna á sviði kyn- og frjósemisheilbrigði í Úganda með sérstakri áherslu á tvö héruð í landinu. Annað verkefnið er unnið í samstarfi við sendiráð Hollands í Kampala og beinist sérstaklega að Kalangala-eyjum í Viktoríuvatni, fyrrverandi samstarfshéraði Íslands. Hitt verkefnið, sem er framkvæmt af alþjóðlegu félagasamtökunum Ipas snýst um að bæta umönnun og þjónustu við konur í Tororo-héraði sem gengist hafa undir þungunarrof. Bæði verkefnin hófust í byrjun þessa árs og staðfestu fulltrúar Íslands í heimsóknum sínum að framgangur þeirra væri samkvæmt væntingum.

  • Frá afhendingu búnaðarins. - mynd
  • Frá viðburði í Namayingo þar sem leikhópur kvenna sem þjáðst hafa af fistúlu sýndi leikþátt til vitundarvakningar. - mynd
  • Frá afhendingu búnaðarins. Hildigunnur Engilbertsdóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala ásamt fulltrúum UNPFA, heilbrigðisráðuneytis Úganda og utanríkisráðuneytis Íslands.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Níu handteknir vegna innflutnings á kókaíni

    Lögreglan rannsakar alvarlegt atvik á hóteli – Einni hæð hót­els­ins lokað af sér­sveitinni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Húsleit í miðborginni

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • SJÖUNDA RÍKIÐ ER ÍRAN …

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?