• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Viðskiptabankarnir fyrir dóm vegna vaxta

Endurgreiðsla gæti hlaupið á mörg hundruð þúsundum króna fyrir hvert lán, jafnvel milljónum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. júní 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Viðskiptabankarnir

Í Héraðsdómi Reykjavíkur var í dag kveðinn upp úrskurður í Vaxtamálinu, en Neytendasamtökin telja skilmála velflestra lána með svokölluðum breytilegum vöxtum vera ólöglega. Neytendasamtökin hafa  því stefnt Arion banka og Landsbankanum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og  Íslandsbanka fyrir Héraðsdóm Reykjaness. 

Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök sem borin eru uppi af félagsgjöldum. Þú getur skráð þig hér!

Lögmenn stefnenda óskuðu eftir að leitað væri ráðgefandi álits EFTA dómstólsins og féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á það að hluta, í einu máli af þremur. Úrlausnarefnið hefur áhrif á öll lán sem tekin eru eftir gildistöku laga um fasteignalán árið 2017.

„Þetta er stórt skref í þá átt að fá kröfur okkar viðurkenndar, en á undanförnum árum hafa fallið dómar sem gefa skýrar vísbendingar um að skilmálarnir séu ólöglegir, meðal annars hjá Evrópudómstólnum. Hann komst að því að óskýrir skilmálar og einhliða vaxtabreytingar er fyrirkomulag sem ekki stenst lög þegar um er að ræða lán til neytenda með breytilegum vöxtum,“ segir Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna.

 

Málinu hefur nú verið frestað hjá Héraðsdómi þar til niðurstaða liggur fyrir hjá EFTA dómstólnum, verði niðurstaðan ekki kærð til Landsréttar. Sú málsmeðferð gæti tekið 6-9 mánuði. Líklegt er að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur liggi ekki fyrir fyrr en eftir um eitt ár.

Neytendasamtökin hvetja alla lántaka til að skrá sig til leiks til að mögulegar kröfur á hendur bönkunum fyrnist ekki. Skráning og allar nánari upplýsingar er að finna á www.vaxtamalid.is.

Úrskurðarorðin:

Hafnað er kröfu stefnenda um að leitað verði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins vegna fjögurra tilgreindra spurninga. Leitað er ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á eftirfarandi: Er andstætt tilskipun 2014/17/ESB, sbr. einkum ákvæði 24. gr. tilskipunarinnar og eftir atvikum f-lið 2. mgr. 10. gr. tilskipunar 2008/48/EB, sbr. 19. mgr. formálsorða tilskipunar 2014/17/ESB, að í skilmálum fasteignaláns til neytanda, þar sem vextir eru breytilegir, komi fram að vaxtabreytingar taki meðal annars mið af vöxtum Seðlabanka Íslands, vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum lánveitandans, þó þannig að vilji lántaki ekki una slíkum breytingum sé honum heimilt a greiða skuldina upp á þeim kjörum sem gilt hafi fram að fyrirhugaðri breytingu innan 30 daga frá tilkynningu lánveitandans um breytinguna?

https://gamli.frettatiminn.is/09/11/2021/thu-gaetir-att-krofu-um-endurgreidslu-a-morg-hundrud-thusundum-jafnvel-milljonum/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    463 deilingar
    Share 185 Tweet 116
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?