• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 8. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hverjir fá 105.000 króna eingreiðslu 1.ágúst?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. júlí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

,,Ein sveitarstjórn hefur ákveðið að sýna manndóm og sanngirni, og lýst því yfir að innágreiðslan muni ná til allra“

Ríki og Reykjavíkurborg hafa ákveðið að borga innágreiðslu upp á 105.000 krónur til félagsmanna í Eflingu þann 1. ágúst. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur á hinn bóginn bannað sínum meðlimum að greiða upphæðina út.
Í fjölmiðlum var birt bréf frá samninganefnd sveitarfélaganna þar sem þessi skipun er sett fram. Þar er ástæðan fyrir banninu sögð vera vísun kjaradeilu Eflingar og SGS-félaganna til ríkissáttasemjara. Deilunni var vísað þangað því samtalið hafði siglt í strand, eins og fyrr hefur komið fram.

Bréf samninganefndar SÍS, birt í Fréttablaðinu.

Í bréfi samninganefndar SÍS er vísað til hinnar „alvarlegu kjaradeilu“ þar sem samninganefnd SÍS „stendur í eldlínunni að verja gríðarlega fjárhagslega hagsmuni sveitarfélaganna“.
„Hvað þá með fjárhagslega hagsmuni lægst launuðu starfsmanna sveitarfélaganna?“ spyr Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. „Fólksins sem sinnir grundvallarstörfunum, þeim störfum sem samfélagið allt reiðir sig á að séu unnin? Enn eina ferðina á að senda þau grimmilegu skilaboð til þess hóps vinnuaflsins á Íslandi sem sannarlega vinnur mikilvægustu störfin að þau séu svo lítils virði í augum háttsetts valdafólks í opinbera kerfinu að það megi ekki einu sinni greiða þeim 105.000 krónur inn á komandi samninga.“
Ástæðan fyrir því að samið var um þessa innágreiðslu var einföld. Sökum þess að viðræður hafa dregist úr öllu hófi sættust samningsaðilar á að starfsmenn opinbera geirans ættu ekki að bíða lengur eftir kauphækkunum í takt við almenna markaðinn.
Þrátt fyrir þetta hefur samninganefnd SÍS ákveðið að undanskilja lægst launaða starfsfólk sveitarfélaganna.
„Grimmd og skeytingarleysi samninganefndarinnar eru óskiljanleg,“ segir Sólveig. „Háttsett og vel launað valdafólk hefur hér ákveðið að refsa láglaunafólki fyrir þann „glæp“ stéttarfélaganna að vísa kjaradeilu til ríkissáttasemjara.“
Ein sveitarstjórn hefur ákveðið að sýna manndóm og sanngirni, og lýst því yfir að innágreiðslan muni ná til allra. Nú standa spjót á hinum sveitarstjórnunum.
„Vilja kjörnir fulltrúar um land allt, fólk sem sjálft er á góðum launum, virkilega vera þekkt fyrir það að ætla að hafa 105.000 krónur af því fólki sem sannarlega munar um þessa upphæð?“ spyr Sólveig.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    Veiddi slasaðan þorsk – ,,hefur allavega ekki lent á bíl“

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    96 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fyrirtæki og þjónusta horfin eftir 40 ára kvótakerfi

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?