• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Neytendasamtökin krefjast tafarlauss endurútreiknings smálána

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. júlí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Neytendasamtökin fagna því að smálánafyrirtækin undir Kredia Group viðurkenni að vextir smálána hafi í áraraðir verið ólöglega háir og hafi ákveðið að lækka þá.
Stjórnvöld tryggi endurútreikning
Stjórnvöld verða að tryggja að nú þegar fari fram endurútreikningur á öllum lánum af hálfu hlutlauss aðila eins og umboðsmanns skuldara. Þetta þarf að gerast sem allra fyrst. Stjórnvöld tryggi einnig að Almenn innheimta ehf. láti umboðsmanni skuldara í té öll nauðsynleg gögn, en mjög hefur skort á upplýsingagjöf frá Almennri innheimtu ehf. til lántakenda.
Almenn innheimta ehf. stöðvi innheimtu
Þar til endurútreikningur hefur farið fram á smálánum sem eru í innheimtu er þess krafist að Almenn innheimta ehf. stöðvi alla innheimtu.
Kredia group og Almenn innheimta ehf. endurgreiði ólögæmta vexti
Fjölmargir hafa þegar gert upp ólögleg smálán og eiga því inni kröfu á bæði Kredia Group og Almennri innheimtu ehf. Bæði þessi fyrirtæki ættu að sjá sóma sinn í því að endurgreiða oftekna vexti og biðja viðskiptavini sína afsökunar á að hafa stundað ólöglega lána- og innheimtustarfsemi um árabil.
Creditinfo taki til í vanskilaskráningu
Neytendasamtökin hafa gagnrýnt harðlega að Creditinfo hafi sett fólk á vanskilaskrá vegna vanskila á ólöglegum lánum. Samtökin hvetja Creditinfo til að bregðast fljótt við og afskrá fólk sem sett hefur verið á vanskilaskrá vegna ólögmætra smálána. Lántakendur eiga ekki sjálfir að þurfa að senda andmæli til Creditinfo og Almennrar innheimtu ehf. þar sem fyrir liggur að vanskilaskráningin var ekki á rökum reist.
Bankar og kortafyrirtæki
Mjög hefur borið á því að smálánafyrirtækið hafi skuldfært af kortum og bankareikningum lántakenda á grunni mjög óljósrar skuldfærsluheimildar. Neytendasamtökin líta það mjög alvarlegum augum að ólöglegar kröfur séu innheimtar með þessum hætti án þess að skýr heimild sé til staðar. Bankar og kortafyrirtæki eru hvött til að aðstoða sína viðskiptavini og tryggja endurgreiðslu ólöglegra úttekta hið snarasta, enda telja Neytendasamtökin að fjármálafyrirtækin séu ábyrg gagnvart sínum viðskiptavinum.
Hafi hraðar hendur
Neytendasamtökin hvetja stjórnvöld og fyrirtæki til að hafa bregðast afar skjótt við svo réttindi lántaka verði tryggð. Í því skyni benda Neytendasamtökin á málshraðann þegar ólögleg gengislán voru endurútreiknuð árið 2010.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?