Fiskistofnar hafa vaxið og dafnað, jafnt og þétt, ólíkt því sem hefur verið að gerast við Ísland undanfarna áratugi
Starfsmenn Trefja voru á fullum krafti í dag að leggja lokahönd á nýsjósett skip við flotbryggjuna í Hafnarfjarðarhöfn. Um er að ræða nýsmíðina Ástu B sem er smíðuð fyrir útgerðarfyrirtæki í eigu íslendinga í Tromsö. Nýsmíðin er af gerðinni Cleopatra 36, sem eru um 15 tonna bátar. Aðalvélin er af gerðinni FPT C13, 650 hestöfl.
Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum og er hannaður til línuveiða. Rými er fyrir 15 stykki af 380 lítra körum í lest á þessari smíði. Fullkomin eldunaraðstaða er um borð auk borðsals sem er staðsettur í brúnni. Rúmgott svefnpláss er fyrir áhöfn í lúkar. Salerni með sturtu er í lúkar og öll þau þægindi sem að hugsast geta í bátum af þessari vinsælu gerð og allt til fyrirmyndar.
Íslendingar hafa verið að gera það mjög gott í Norður-Noregi og mörg dæmi eru um að útgerðarmenn hafi gefist upp á íslenska kvótakerfinu og stofnað stöndug og arðbær útgerðarfélög í Noregi. Talsvert hefur verið um að útgerðirnar hafi verið að kaupa ný skip fyrir rekstur sinn ytra og sumar gera út fleiri skip og báta ásamt vinnslu. Mikil veiði hefur verið undanfarin ár og bjart framundan og mikil bjartsýni er ríkjandi. Enda hafa fiskistofnar vaxið og dafnað, jafnt og þétt, ólíkt því sem hefur verið að gerast á miðunum við Ísland undanfarna áratugi.
Engin eðlileg nýliðun er í íslenskum sjávarútvegi og sem dæmi er skatthæsti aðilinn í sjávarútvegi á Íslandi í dag, kona á níræðisaldri í Reykjavík en Sigríður Vilhjálmsdóttir fjárfestir var sjöundi tekjuhæsti íbúi Reykjavíkur í fyrra. Árstekjur hennar námu þá 365.632.596 krónum, allt fjármagnstekjur. Hún varð níræð í ár og taldi ekki fram launatekjur. Sigríður á hlut í Hval hf. gegnum Fiskveiðahlutafélagið Venus og deildi þriðjungshlut í HB Granda með Kristjáni og Birnu Loftsdóttur.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/03/11/17-ara-og-keypti-ser-bat-og-kominn-i-blomlega-utgerd/