• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland tekur á móti sýrlenskum barnafjölskyldum frá Lesbos

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. september 2020
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að Ísland taki á móti flóttafólki frá Lesbos á Grikklandi, með áherslu á sýrlenskar fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Fjölskyldurnar bjuggu áður í flóttamannabúðunum Moria sem eyðilögðust í eldsvoða fyrr í mánuðinum.
Flóttafólkið frá Lesbos, sem verður allt að 15 manns, mun bætast í hóp þeirra 85 sem ríkisstjórnin hyggst taka á móti á þessu ári og er það langfjölmennasta móttaka flóttafólks á einu ári hingað til lands.
Flóttamannanefnd mun annast undirbúning á móttöku fjölskyldnanna og verður móttaka þeirra unnin í samvinnu við Evrópusambandið og grísk stjórnvöld. Evrópusambandið hafði áður sent frá sér ákall um nauðsyn á flutningi barna og barnafjölskyldna vegna bruna Moria flóttamannabúðanna. Þá mun Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna vera íslenskum stjórnvöldum innan handar varðandi það hvernig best verður staðið að því að koma fjölskyldunum til landsins.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:„Við viljum bregðast við ákalli því sem borist hefur um að taka á móti fólki á flótta frá Lesbos. Hér á landi hefur skapast umfangsmikil og dýrmæt þekking þegar kemur að móttöku sýrlenskra fjölskyldna og sú reynsla okkar kemur að góðum notum. Það er stefna ríkisstjórnarinnar að taka á móti fleira flóttafólki í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sem lýst hefur ánægju með móttöku flóttafólks hér á landi.“
Flóttamannanefnd heyrir undir félags- og barnamálaráðherra en í nefndinni sitja fulltrúar frá dómsmálaráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu. Þá hafa Rauði krossinn á Íslandi, Samband íslenskra sveitarfélaga og Útlendingastofnun áheyrnarfulltrúa í nefndinni.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?