Ekið var á ungan mann (16 ára) á rafhlaupahjóli, í hverfi 105. Bifreið var ekið á ungan mann og sá vitni manninn fljúga í loftinu með alla anga úti áður en hann lenti á götunni.
Maðurinn fann til eymsla í handlegg ( mögulega brotinn ) og var hann fluttur með sjúkrabifreið á Bráðadeild. Hjólið var flutt að heimili mannsins þar sem rætt var við forráðamann. Bifreiðin var fjarlægð af vettvangi með Króki.
Þá var einnig ekið á hjólreiðamann við Dalatorg, í Kópavogi. Maðurinn var að hjóla yfir akbraut, á gangbraut, er bifreið ekur á hann. Maðurinn fann til eymsla í mjöðm og hné.
Umræða