Á fundinum meðal annars rætt um um efnahagslegar afleiðingar heimsfaraldursins, vegabréfsáritanir fyrir íslenska atvinnurekendur og fjárfesta, kerfisbundna skimun á erlendum fjárfestingum og vernd mikilvægra innviða. Þá var á fundinum undirritað sameiginlegt minnisblað um áframhaldandi samvinnu á ýmsum sviðum á þessum vettvangi og festa samráðið í sessi þannig að það verði eftirleiðis haldið árlega.
„Bandaríkin eru okkar mikilvægasta viðskiptaland og það hefur líklega aldrei verið mikilvægara en nú að styrkja sambandið vestur yfir haf. Áþreifanleg staðfesting á að nánari samvinna sé farin að skila árangri er Íslandsfrumvarpið svonefnda um sérstakar vegabréfaáritanir fyrir íslenskt viðskiptafólk í Bandaríkjunum. Ég er bjartsýnn á að fleiri brýr verði byggðar á næstu misserum til að efla viðskipti á milli þessara vinaþjóða. Í því sambandi skiptir miklu máli að efnahagssamráðið hefur nú verið fest í sessi þannig að það verður haldið á hverju ári,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
„Til viðbótar við þennan formlega vettvang ríkjanna hef ég auk þess beitt mér fyrir að efla enn frekar tengslin við Bandaríkjaþing og styrkja samráðið við embætti viðskiptafulltrúa Bandaríkjaforseta [USTR]. Þá höfum við lagt mikla áherslu á að að stækka það tengslanet sem íslensk stjórnvöld og útflutningsgreinar hafa í Bandaríkjunum. Þetta hefur gert okkur kleift að taka upp brýn hagsmunamál milliliðalaust, ný og nærtæk dæmi um slíkt eru viðbrögð við heimsfaraldrinum og grálistun FATF.“
Manisha Singh, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna á sviði efnahags- og viðskiptamála, leiddi fundinn af hálfu Bandaríkjamanna og Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fór fyrir íslensku sendinefndinni. Auk þeirra sátu fulltrúar utanríkis-, viðskipta- og fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna auk bandaríska sendiráðsins í Reykjavík fundinn en frá Íslandi tóku þátt fulltrúar utanríkis-, forsætis- og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, sendiráðs Íslands í Washington, auk fulltrúa Íslandsstofu. Þessi vettvangur gefur tækifæri til að ræða á breiðum grundvelli mál sem varða efnahags og viðskiptasamskipti landanna.
Umræða