Alþjóðleg ráðstefna um kynferðisbrot gegn börnum á netinu
Alþjóðleg ráðstefna um kynferðisbrot gegn börnum á netinu fer fram í Háskólanum í Reykjavík, V101, 5. og 6. desember næstkomandi. Fyrirlesarar hafa allir sérþekkingu á málaflokknum innan lögreglunnar, ákæruvaldsins og í fræðasamfélaginu.
Að ráðstefnunni standa Norræna ráðherranefndin og Háskólinn í Reykjavík í samstarfi við Dómsmálaráðuneytið, Embætti Ríkissaksóknara, Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar.
Dagskrá ráðstefnunar má finna með því að smella HÉR. Skráning er til 4. desember og hægt er að bóka sig á síðu Mennta- starfsþróunarseturs lögreglunnar
Umræða