Göngudeildarmeðferð
Á sjúkrahúsinu Vogi er lögð áhersla á fíknsjúkdóm sem margþátta sjúkdóm sem hægt er að meðhöndla. Meðferðin er byggð á læknisfræðilegum greiningum, afeitrun með fagfólki, lyfjameðferð og einstaklingshæfðri sálfélagslegri meðferð. Mismunandi hópar fá mismunandi úrræði.
Einstaklingshæfð meðferðaráætlun
Einstaklingshæfð meðferðaráætlun er gerð í samvinnu við sjúklinginn þar sem tekið er tillit til kyns, aldurs, félagslegra, líkamlegra og sálfræðilegra þarfa.
Sálfélagslega meðferðin er kynjaskipt til að skapa öryggi og næði til að ræða viðkvæm mál og styrkja félagsleg tengsl meðal kvenna/karla.
Allir meðferðarhópar kynjaskiptir, einnig svefngangar á neðri hæð þar sem konur eru á sérstökum gangi. Sameiginleg rými í fyrirlestrasal og í matsal eru kynjaskipt.
Viðtalsþjónusta
Viðtalsþjónusta við ráðgjafa á göngudeild er veitt alla daga, bæði fyrir fólk með fíknsjúkdóm og aðstandendur.
Göngudeildarmeðferð – Dagmeðferð
Hægt er að sækja dagmeðferð á göngudeild í Reykjavík að lokinni dvöl á sjúkrahúsinu Vogi. Dagmeðferð hentar þeim sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu, búa við góðar félagslegar aðstæður og góða líkamlega heilsu. Dagmeðferð er frá kl. 13.00-15.00, fjóra daga vikunnar frá mánudögum-fimmtudaga í fjórar vikur. Að því loknu einu sinni í viku í þrjá mánuði.
Eftirfylgni og stuðningur
Að lokinni meðferð á Sjúkrahúsinu Vogi og/eða inniliggjandi eftirmeðferð á Vík er boðið upp á áframhaldandi meðferð á göngudeildum SÁÁ í 12 mánuði. Mismunandi hópar fá mismunandi úrræði. Stuðningshópur er einnig í boði alla daga.
Opin fyrirlestraröð fyrir alla
Boðið er upp á fyrirlestra í göngudeildinni í Reykjavík fjóra daga vikunnar, mán.-fim. kl. 13.00. Fyrirlestrarnir eru í boði fyrir alla sem vilja afla sér þekkingar um fíknsjúkdóminn.
Umræða