Verða ekki bara útgerðir Strandveiðarbáta að sameinast um enga stöðvun á næsta tímabili og senda málið svo til mannréttindanefndar og mannréttindadómstóls í framhaldinu?
Sé lítinn vilja stjórnvalda til að koma til móts við þennan útgerðaflokk sem á samt að færa sig í nútíma orkugjafa sem krafa er um, en með hverju. Ekkert tillit er tekið til þess að við í Strandveiðum getum orðið umhverfisvænni en við erum í dag, og erum við nú þegar hybrid.
Við viljum eins og aðrir eiga kost á að uppfæra báta okkar alfarið í rafmagni. Samanber styrkir til bílaleigur sem nam bara einum milljarð og er bara fyrsta skrefið er sem sagt rétt að byrja. Þá hafa styrkir í þessa veru verið veittir stórútgerðum. sem færa sig nær nútíma kröfum, en hvernig getum við fylgt þessu eftir ef við fáum aðeins 2 mánuði á veiðum.
Einfalt væri að stórauka veiðar þessara báta og komast þannig frá rikisstyrkjum við þá, en þess ber að geta að þessar veiðar hafa vægi í ferðaþjónustu og sýna sögu og hvernig Ísland byggðist upp. Túristi er tíður gestur á bryggjunni við löndun og hefur gaman af því að fá myndir af sér við hlið trillukarla og afurða þeirra.
Einskis virði í augum ríkisstjórnar Íslands
En þetta er einskis virði í augum ríkisstjórnar okkar enda er hún ekki í takt við fólkið í byggðum landsins og sér ekki sóknafæri sem túristin sýnir okkur þó með sínum áhuga á tilvist um hvernig Ísland byggðist upp og þeim landnámsrétt sem veiðunum fylgja.
Við viljum gjarnan færa okkur til nútíma orkugjafa
En slíkur búnaður myndi kosta hvern bát 70 miljónir. Þetta væri hægt að laga með engum kostnaði fyrir þjóðina. Með auknum veiðum smábáta. Enda vega veiðar smábáta litið til að fiskistofnar þjóðarinnar fái ekki að dafna og vaxa. En vissulega vega þessar veiðar meira fyrir þjóðina alla fyrir gjaldeyrisinnkomu.
Snarauka veiðar smábáta við Grænland – Er sú þjóð að taka fram úr Íslandi
Samanber er Brim að snarauka veiðar sínar með smábátum við Grænland, hvers vegna velur hann það útgerðaminstur þa?. Er krafa heimamanna þar sterkari en hér ? Er krafa um umgengni um fiskveiðikerfið þar á þá leið að þar skuli auðlindin veidd á umhverfisvænstu veiðar á handfærum á grunninu við Grænland?
Er sú þjóð að taka fram úr Íslandi og mun hún ná markaðshlutdeild á undan Íslandi með umhverfisvænasta hráefni fyrir neytandan sem vissulega gerir nútíma kröfu um umgengni um auðlindir og matarforða og mataröryggi heimsins.
Sé ekki betur en vinstri grænir haldi einfaldlega aftur af grænni orku og framþróun fyrir Strandveiðarbáta, sem eru þó allir að vilja gerðir til að þróast með nútímanum. Þetta er skrítin pólitík.