Togarinn Vestmannaey VE-54 sem dótturfélag Síldarvinnslunnar, Bergur-Huginn ehf., gerir út hefur verið sviptur leyfi til veiða í tvær vikur fyrir vigtunarbrot. Gildir ákvörðun Fiskistofu frá og með 6. janúar til og með 19. janúar.
Fréttin birtist á vef Mbl.is (gleymdist að geta þess) og þar segir að ,,Fiskistofa segi í ákvörðun sinni veiðileyfissviptinguna að „um alvarleg og meiriháttar brot skipstjóra og áhafnarmeðlima að ræða framin af stórkostlegu gáleysi, sem hefði leitt til verulegs ávinnings fyrir málsaðila hefðu þau ekki komist upp“. Vegna þessa kveðst Fiskistofa ekki ástæðu til að áminna eða veita lágmarksleyfissviptingu þrátt fyrir að um sé að ræða fyrsta brot.
Í ákvörðuninni segir Fiskistofa það hins vegar ekki skipta máli þar sem ábyrgðin á því að afli sé vigtaður á herðum skipstjóra.“
Ók af stað til Dalvíkur
Jafnframt kemur fram í frétt Mbl.is að ,,í málsgögnum að Fiskistofu hafi borist ábending frá hafnarverði í Neskaupstað að 5. desember 2023 hafi afla úr Vestmannaey verið ekið frá löndunarstað án þess að hafa átt viðkomu á hafnarvog.
Í skýrslu veiðieftirlitsmanns Fiskistofu er haft eftir vigtarmanni að skipið hafi lagst við bryggju í Neskaupstað um klukkan 19:30 til löndunar. Tveir löggiltir vigtarmenn hafi staðið að framkvæmd vigtunar, einn á pallvog á bryggju en hinn á bílvog. Stýrimaður Vestmannaeyjar ásamt tveimur hásetum ísuðu yfir afla til útflutnings og sinntu löndun.
Um hálf ellefu um kvöldið var vigtun á meirihluta aflans lokið og gaf vigtunarmaðurinn á pallvog fyrirmæli til verkstjóra löndunargengis á vegum Tandrabergs ehf. að restin, 30 kör af ýsu sem átti að flytja til Samherja á Dalvík, yrði öll vigtuð á bílavoginni. Segir hann engar athugasemdir hafa verið gerðar við það.
Skömmu síðar voru báðir vigtunarmenn við bílavogina og þegar vigtun afla í einum flutningabíl var lokið kom fram í spjalli þeirra við bilstjóra um síðasti bílinn sem átti að sækja hin fyrrnefndu 30 kör af ýsu væri þegar mættur, og að hann væri að taka körin sem væru þegar vigtuð að sögn bílstjórans. Var vigtarmanni brugðið og hélt hann um leið niður að bryggju, enginn bíl var þó þar og aflinn farinn af stað til Dalvíkur.
Ákváðu vigtunarmenn að tilkynna málið til lögreglu sem mætti og hóf leit að bílstjóra flutningabílsins með 30 kör af óvigtaðri ýsu, alls 10,6 tonn. Tókst að finna ökumanninn sem sagði um mannleg mistök að ræða, gleymska hafi orsakað að hann ók af stað.
Upp úr miðnætti var flutningabíllinn mættur á ný til Neskaupstaðar þar sem aflinn var vigtaður.
Fiskistofa vísar til þess að fyrsta málsgrein níundu greinar laga um umgengni um nytjastofna sjávar segir: „Skipstjóra fiskiskips er skylt að halda afla um borð í skipi sínu aðgreindum eftir tegundum. Verði því ekki komið við vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Skipstjóra fiskiskips er skylt að láta vigta hverja tegund sérstaklega. […] Skipstjóra ber að tryggja að réttar og fullnægjandi upplýsingar um aflann berist til vigtarmanns.“
Málsaðili telur hins vegar ekki neinn ásetning hafa legið að baki þess að bílstjóri á vegum Eimskips hafi ekið á brott með rúm tíu tonn af ýsu heldur hafi verið um mannleg mistök að ræða sem leiddi til þess að bílstjórinn fór ekki á bílvog og fékk ekki vigtunarnótu.“ Segir í frétt Mbl.is