Aðgengi að fjárhagsupplýsingum ríkisins hefur aukist til muna með vefnum opnirreikningar.is, sem hleypt var af stokkunum fyrir rúmu ári. Upphaflega voru á vefnum upplýsingar yfir greidda reikninga ráðuneyta en stofnanir í A-hluta ríkissjóðs hafa komið inn á vefinn í áföngum. Þeirri innleiðingu er lokið og hægt að nálgast greiðsluupplýsingar 132 stofnana á vefnum.
Opnum reikningum var komið á fót í samræmi við stefnu stjórnvalda um bætt viðmót og aðgengi að stjórnsýslu. Þeim er ætlað að veita einfalda og skýra mynd af viðskiptum stofnana með því að birta yfirlit yfir greidda reikninga. Markmiðið er að hægt sé að skoða greidda reikninga nálægt rauntíma, en vefurinn er uppfærður mánaðarlega.
Hægt er að skoða viðskiptin út frá stofnunum, birgjum, tegund kostnaðar og tímasetningu.
Opnir reikningar
Umræða