Frumvarp fjármálaráðherra um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál var samþykkt sem lög frá Alþingi áðan. Frumvarpið var samþykkt með 44 atkvæðum gegn 9 atkvæðum þingflokks Miðflokksins
„Það er synd að sjá í hvað stefnir í þessari atkvæðagreiðslu og sannast nú enn á ný og hefur gert alloft áður að undnaförnu að það eru í rauninni bara tveir flokkar á Alþingi, Miðflokkurinn og Samtryggingin,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og uppskar mikinn hlátur.
Þingflokkur Miðflokksins er einn þingflokka á móti málinu og formaðurinn varar í nefndaráliti sínu við því að áform frumvarpsins skapi hættuleg fordæmi.
„Það er mikið gleðiefni að fá að greiða hér atkvæði með þessu frumvarpi og segja já. Hér er ekki farið eftir embættismönnum eða þvingunum þeirra heldur einfaldri heilbrigðri skynsemi,“ sagði Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis og fyrrverandi fjármálaráðherra tók til máls undir lok umræðunnar og hann sagðist undrast að það væri ekki bros á hverju andliti til þess að fagna fyrirhugaðri samþykkt frumvarpsins , það sé stórkostlegt að Ísland sé komið í þessa stöðu.
https://www.fti.is/2019/02/27/utgreidsla-83-milljarda-til-vogunarsjoda-upphaedirnar-sem-thjodin-verdur-af-hleypur-a-milljordum-ef-ekki-tugum-milljarda/
Umræða