• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hárið hans Hall­dórs og skapið hennar Sól­veigar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. febrúar 2023
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0
Efnahagsmál: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

Sprengjuástandið sem ríkir á íslenskum vinnumarkaði hefur verið einfaldað í umræðunni. Stundum alveg niður í skap Sólveigar Önnu og hár Halldórs Benjamíns. Spennustigið stafar þó auðvitað ekki af því hvernig þessar tvær aðalpersónur viðræðnanna ná saman heldur af því að fólk hér á landi býr ekki við jöfn tækifæri.

Verðbólgan hefur mun þyngri áhrif á tekjulægri hópa en þá sem betur standa. Annað stórt vandamál er að vaxtahækkanir eru margfaldar hér á landi miðað við það sem við sjáum í nágrannaríkjum og í Evrópu, þrátt fyrir að verðbólga hafi líka verið vandamál þar. Þessar vaxtahækkanir bíta almenning mjög fast.

Á meðan búa aðrir hópar í samfélaginu í öðru hagkerfi með annan gjaldmiðil. Hvaða réttlæti er í því að almenningur og smærri fyrirtæki taki á sig kostnað vegna vaxtahækkana af fullum þunga á meðan stórfyrirtæki eru í skjóli evru og dollara? Eða að almenningur þurfi að borga fyrir íbúðina sína mörgum sinnum?

Hér búa tvær þjóðir

Á Íslandi er erfiðara fyrir fólk að eignast húsnæði en í nágrannaríkjum okkar. Fólk á íslenskum leigumarkaði býr við mjög erfiðar aðstæður og lítið öryggi. Matur er langtum dýrari hér. Húsnæðislán eru langtum dýrari. Tryggingar eru langtum dýrari. Raunveruleg samkeppni milli bankanna ríkir ekki sem sést best á að þeir taka sér sirka korters umhugsunarfrest í að hækka vexti eftir vaxtaákvarðanir Seðlabankans og nánast allir í beit. Fákeppnin er mikill óvinur almennings.

Kraftmiklar sveiflur á gengi íslensku krónunnar gera það að verkum að íslenskur markaður verður lítið aðlaðandi fyrir innkomu erlendra fyrirtækja, sem eru vön að geta gert spár lengra en nokkrar vikur fram í tímann. Þess vegna eru engir erlendir bankar hér. Og það sama gildir um tryggingamarkaðinn. Þessar sveiflur eru óvinur almennings því þessar sveiflur verja fyrirtækin fyrir erlendri samkeppni. Og fyrir það borgar almenningur hátt gjald.

Vinnumarkaðsmódelið þarf að laga

Það þarf að ræða vinnumarkaðsmódelið og vinnumarkaðslöggjöfina. Þar hefði reyndar þurft að búa betur í haginn af hálfu stjórnvalda fyrir löngu. Löggjöfin er götótt og ríkissáttasemjari hefur verið skilinn eftir með fæ verkfæri í verkfærakassanum. Og það er ekki hægt að skamma Landsrétt fyrir að dæma í samræmi við mjög skýran vilja löggjafans. Það var Alþingi sem tók á sínum tíma ákvörðun um að taka út ákvæði sem skyldaði aðila til að afhenda ríkissáttasemjara kjörskrá. Dómstóll sem virðir þann skýra vilja löggjafans er ekki skúrkurinn í málinu.

Stóra myndin snýst um jöfn tækifæri

Vinnumarkaðsmódelið er eitt og skekkjurnar í hagkerfinu eru annað. Venjulegt fólk á Íslandi býr ekki við jöfn tækifæri. Almenningur lifir í krónuhagkerfi en um 300 íslensk stórfyrirtæki nota ekki krónuna. Það gerir stóreignafólk ekki heldur sem getur geymt fjármagn í erlendum gjaldmiðlum. Þessi fyrirtæki eru einfaldlega ekki með á vellinum og er nokk sama þótt ríkisstjórnin skori sjálfsmörk.

Um fjórðungur lántakenda eru með óverðtryggð húsnæðislán á breytilegum vöxtum og þessi fjórðungur hefur tekið á sig vaxtahækkanir af fullum þunga núna. Innan tíðar bætist við þennan hóp þegar föstu vextirnir fara að losna af öðrum húsnæðislánum og greiðslubyrðin snar hækkar með versnandi lífskjörum. Þegar vextir eru hækkaðir þá eru það almenningur og litlu fyrirtækin sem taka á sig kostnaðinn og bera byrðarnar. Þetta ástand bítur ekki fyrirtækin fyrir utan krónuhagkerfið.

Auðvitað skapar þetta óréttlæti spennu í samfélaginu. Friður til lengri tíma þarf að vera í kringum það að tryggja stöðugleika fyrir fjölskyldurnar í landinu. Er friður um það að venjuleg íslensk heimili þurfi að borga íbúðina sína mörgum sinnum? Eða að það að eignast heimili sé áhættufjárfesting? Og er friður um það að fákeppni sé tekin fram yfir heilbrigða samkeppni? Vonandi næst samkomulag í kjaradeilunni sem allra fyrst – vonandi að fólkinu í aðalhlutverkunum takist að ná samningi. En það verður kjaradeila eftir þessa og verkefnið á að vera að skapa frið í samfélaginu til lengri tíma. Til þess að svo geti orðið þarf að búa fólkinu í landinu jöfn tækifæri – með almennum reglum, heilbrigðri samkeppni og stöðugum gjaldmiðli.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?