• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 13. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rússneskar herflugvélar í loftrýmiseftirlitssvæði NATO við Ísland

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. mars 2019
in Erlent, Fréttir
A A
0

Tvær ítalskar orrustuþotur, sem eru á Íslandi við loftrýmisgæslu, voru í gærkvöld sendar á loft til að auðkenna tvær óþekktar flugvélar sem komnar voru inn í loftrýmiseftirlitssvæði Atlantshafsbandalagsins hér við land

Tupolev Tu-142 (Bear F). Rússneskar sprengjuflugvélar á svæði NATO

Um var að ræða tvær rússneskar sprengjuflugvélar af gerðinni Tupolev Tu-142 (Bear F). Þær höfðu hvorki tilkynnt sig til flugumferðarstjórnar né voru með ratsjársvara í gangi. Þetta er í annað sinn í þessum mánuði sem rússneskar sprengjuflugvélar fljúga inn fyrir mörk loftrýmiseftirlitssvæðis Atlantshafsbandalagsins við Ísland.
„Það er til marks um vaxandi hernaðarumsvif Rússa við Ísland að rússneskar herflugvélar hafa í þessum mánuði flogið tvisvar inn í loftrýmiseftirlitssvæði Atlantshafsbandalagsins hér við land. Þetta atvik kemur upp þegar ítalski flugherinn er á Íslandi við loftrýmisgæslu, öll viðbrögð hans voru í fyllsta samræmi við vinnureglur Atlantshafsbandalagsins. Atvikið staðfestir enn einu sinni mikilvægi loftrýmiseftirlits og loftrýmisgæslu hér á landi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland stendur nú yfir en flugsveit ítalska flughersins kom hingað til lands fyrir nokkru. Verkefnið heyrir undir svæðisstjórnstöð Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) en Landhelgisgæsla Íslands ber ábyrgð á framkvæmdinni hérlendis, í samvinnu við Isavia. Ítalska flugsveitin er með fjórar Eurofighter Typhoon EF-2000 orrustuþotur.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    245 deilingar
    Share 98 Tweet 61
  • Mohamed og Amir dæmdir fyrir nauðgun – með alþjóðlega vernd á Íslandi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Vitni óskast að banaslysi

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • Kærður fyrir hnupl í kynlífstækjaverslun

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?