Norska lögreglan handtók í morgun Tom Hagen, eiginmann Anne-Elisabeth Hagen sem hefur verið saknað á annað ár. Aðgerð lögreglu var fjölmenn að sögn fjölmiðla og nágranna. Norskir miðlar greina frá þessu og lögregla er búin að girða af heimili þeirra hjóna og tæknideild lögreglunnar er þar að störfum.
Anne-Elisabeth Hagen hvarf sporlaust af heimili sínu í október 2018 og hefur verið leitað síðan. Fyrst var talið að hún hefði verið numin á brott og kröfðust meintir mannræningjar lausnargjalds en eiginmaður hennar sem er einn auðugasti maður Noregs neitaði að greiða gjaldið. ,,Við höfum áður sagt að ólíklegt sé að Anne-Elisabeth Hagen verði á lífi þegar hún finnst, vegna þess að langur tími er liðinn frá hvarfi hennar. ,,Engin sönnun hefur borist um að hún sé á lífi,“ sagði Tommy Brøske, hjá norsku lögreglunni þann 8. janúar. Lögreglan hefur farið fram á mánaðar gæsluvarðhald yfir Tom Hagen.
Samkvæmt fréttum norskra fjölmiðla var Hagen handtekinn klukkan 8:30 að staðartíma í morgun eða klukkan 6:30 að íslenskum tíma. Lögregla stöðvaði Hagen er hann var á leið frá heimili þeirra hjóna í Sloraveien í Lørenskog til vinnu í Futurum. Samkvæmt VG lokaði lögregla af svæðinu og voru fjölmargir lögreglubílar á staðnum þegar aðgerðin fór fram. Fjöldi athugasemda nágranna eru á samfélagsmiðlum sem segja að aðgerðin hafi verið fjölmenn.Eftir handtökuna fór lögregla bæði á heimili þeirra Anne-Elisabeth og Tom Hagens og skrifstofu hans í Futurum og stendur yfir húsleit þar.
Að sögn lögreglu verður boðað til blaðamannafundar klukkan 10:30, klukkan 8:30 að íslenskum tíma.
Fram kemur í fréttum norska fjölmiðla að Tom Hagen hafi verið samvinnuþýður vegna hvarfs eiginkonu hans. Hann hefur frá upphafi, talið að innlendir glæpamenn beri ábyrgð á hvarfi Anne-Elisabeth og krafist lausnargjalds.