Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á fyrsta ársfjórðungi 2019, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 33,2 milljarða króna samanborið við 9,3 milljarða króna afgang á sama tíma árið 2018, á gengi hvors árs. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var hagstæður um 3,5 milljarða á meðan þjónustujöfnuður var hagstæður um 29,7 milljarða. Heildarútflutningstekjur á fyrsta ársfjórðungi 2019, vegna vöru- og þjónustuviðskipta, námu 308,4 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 275,2 milljörðum króna.
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruviðskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruviðskipta- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2019. Í mars var áætlað verðmæti útflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 100,1 milljarður en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 97,4 milljarðar. Vöru og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 2,7 milljarða í mars 2019.
Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflum á vef Hagstofunnar sem samræma staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til mars 2018 og 2019 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % % jan-mar | ||||
Mars | Janúar-Mars | ||||
2018 | 2019 | 2018 | 2019 | ||
Vöru- og þjónustuviðskipti, útflutningur alls | 92.239,3 | 100.133,2 | 272.360,1 | 308.372,6 | 13,2 |
Vöruskipti: = Útflutningur í greiðslujöfnuði | 44.249,7 | 53.612,4 | 140.545,9 | 176.671,1 | 25,7 |
Þjónustuviðskipti: = Útflutt þjónusta | 47.989,7 | 46.520,8 | 131.814,2 | 131.701,5 | -0,1 |
Vöru- og þjónustuviðskipti, innflutningur alls | 90.853,9 | 97.386,8 | 263.013,0 | 275.168,9 | 4,6 |
Vöruskipti: = Innflutningur í greiðslujöfnuði | 56.672,0 | 61.471,7 | 167.749,1 | 173.181,4 | 3,2 |
Þjónustuviðskipti: = Innflutt þjónusta | 34.181,8 | 35.915,0 | 95.264,0 | 101.987,5 | 7,1 |
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði | 1.385,5 | 2.746,5 | 9.347,0 | 33.203,7 |