Hugleiðingar veðurfræðings
Enn er fyrirstöðuhæð suður í hafi sem beinir lægðum til norðurs fyrir vestan Ísland. Í dag er því suðvestan 8-15 m/s og rigning eða súld, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Hitinn er yfirleitt á bilinu 8 til 17 stig, hlýjast í hnjúkaþeyr á Austfjörðum.
Á morgun bætir í vind um norðvestanvert landið, víða suðvestan 15-20 m/s eftir hádegi á morgun og varasamt ferðaveður fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Í öðrum landshlutum verður vindur heldur hægari, yfirleitt á bilinu 8-13 m/s. Áfram rigning eða súld og hiti 8 til 12 stig sunnan- og vestantil, en bjartviðri og hiti að 20 stigum um austanvert landið.
Á þriðjudaginn er svo minnkandi suðvestanátt og í framhaldinu horfir almennt til betri vegar í veðrinu. Hægir vestlægir vindar og skýjað með líkum á dálítilli þokusúld vestast, en annars að mestu léttskýjað. Hlýnandi veður. Spá gerð: 28.05.2023 15:43. Gildir til: 29.05.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan og suðvestan 8-15 m/s, víða súld eða rigning og hiti 7 til 12 stig.
Bætir í vind um norðvestanvert landið á morgun, víða suðvestan 15-20 m/s eftir hádegi, annars yfirleitt 8-13 m/s. Áfram rigning eða súld með köflum, en léttir til norðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.
Spá gerð: 28.05.2023 15:29. Gildir til: 30.05.2023 00:00.
Gul viðvörun vegna veðurs: Breiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland eystra og Strandir og norðurland vestra
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðvestan 10-18 m/s og dálítil væta, en bjartviðri austanlands, hvassast með suðaustuströndinni. Dregur úr vindi eftir hádegi. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi.
Á miðvikudag:
Vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og skýjað með köflum, en léttir til er líður á daginn. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á fimmtudag og föstudag:
Vestan 5-10 m/s. Skýjað og þurrt að kalla á vestanverðu landinu, en yfirleitt léttskýjað austantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast austurhelming landsins.
Á laugardag:
Suðvestanátt og skýjað með lítilsháttar vætu af og til, en bjarviðri austantil. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 28.05.2023 07:59. Gildir til: 04.06.2023 12:00.