Tíu árum eftir hrun eru íslendingar sundruð þjóð
Sú staðhæfing sem sett er fram í fyrirsögninni hér að ofan byggist ekki á vísindalegri rannsókn heldur tilfinningu. Við höfum náð okkur vel á strik efnahagslega, eins og flestum er ljóst, en eftir situr sú vonda tilfinning hjá verulegum hluta þjóðarinnar að vitlaust hafi verið gefið.
Ef þetta mat er rétt felst í því, að þeim hópi fólks, sem hafa stjórnað landinu frá því veturinn 2009 til þessa dags hafi mistekizt mikilvægasta hlutverk sitt, þ.e. að sameina þjóðina eftir áföllin haustið 2008.
Kannski er ástæðan sú, að þeir sem hafa valizt til þessa verkefnis, hafa aldrei haft þann skilning að þetta tiltekna verkefni skipti máli.
En það skiptir máli. Vegna þess að verði hér ekki ráðin bót á, mun sú djúpstæða reiði, sem er til staðar, móta allt samfélag okkar til framtíðar. Og það er vondur kostur fyrir fámennan hóp fólks sem býr á þessari eyju.
Á næstu mánuðum og misserum gefst tækifæri til að laga það, sem hefur farið úrskeiðis. En til þess að það takist þurfa stjórnendur lands og þjóðar að skilja að það skipti máli.
Er sá skilningur til staðar?
Höf. Styrmir Gunnarsson, f.v. Ritstjóri Morgunblaðsins

Umræða