Þau voru glöð og ánægð hjónin nýgiftu sem komu við hjá Íslenskri getspá til að sækja rúmlega 80 milljóna króna vinning í EuroJackpot. Hjónin voru ein fjögurra sem hlutu 2. vinning í EuroJacpot í síðustu viku.
„Ég kaupi stundum lottómiða í vinnunni í gegnum símann“ sagði eiginkonan, „en gleymdi því í þetta sinn. Mundi svo allt í einu eftir því að kaupa miða þegar ég var að koma heim og ákvað að kaupa miðann þar sem ég stóð fyrir framan útidyrnar, áður en ég færi inn til mín svo ég myndi örugglega ekki gleyma því að vera með“.
Hjónin búa á vesturlandi og eiga tvö börn. „Við erum ekki búin að ákveða hvað við gerum við vinninginn, við ætlum að þiggja fjármálaráðgjöf sem Íslensk getspá býður uppá og hlusta á ráðleggingar“ sögðu hjónin að lokum.
Umræða