Íslandsbanki og Arion banki birtu í dag afkomutilkynningu vegna annars ársfjórðungs, en Landsbankinn hafði birt sína í síðustu viku. Afkoma Íslandsbanka batnar til muna frá sama tímabili í fyrra. Bankinn hagnaðist um 5,4 milljarða á tímabilinu, sem nær frá mars fram í maí.
Arðsemi eigin fjár nam 11,6% og útlán til viðskiptavina jukust um 8,2% frá áramótum til loka maí, einkum vegna aukinna umsvifa á fasteignamarkaði en einnig aukinna lána til fyrirtækja. Fjallað er um málið á Rúv.is og þar segir jafnframt að eigið fé bankans nam 190 ma. kr. í lok júní og heildareiginfjárhlutfall bankans var 22,9%.
Á fyrri helmingi ársins hagnaðist Íslandsbanki um níu milljarða en ríkið er eins og er, stærsti eigandi Íslandsbanka, með um 65% hlut en 35% hlutur ríkisins var seldur á útboði í síðasta mánuði á undirverði og er vilji Sjálfstæðisflokksins að einkavæða bankann enn frekar með því að selja meira af hlutabréfum í bankanum.
Arion banki hagnaðist um 7,8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi Bankinn hefur á fyrstu sex mánuðum ársins hagnast um 13,8 milljarða króna og greitt hluthöfum 17,8 milljarða króna í formi arðs og endurkaupa á hlutabréfum. Þá mun bankinn hefja endurkaup á bréfum fyrir fjóra milljarða króna á morgun segir í frétt Rúv.