• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Tímamótasamningur um tannréttingar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. júlí 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum Sjúkratrygginga og tannréttingasérfræðinga undirrituðu samning um tannréttingar í heilbrigðisráðuneytinu í dag en þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur hefur verið gerður um þjónustu tannréttingasérfræðinga. Samningurinn felur í sér mikilvæg tímamót og skapar meðal annars forsendur til þess að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum.

Ingibjörg K. Þorsteinsdóttir, Kristín Heimisdóttir, Willum Þór Þórsson, Sigurður Helgi Helgason og Guðlaug Björnsdóttir við undirritun samningsins

Samningurinn sem er til þriggja ára tekur gildi 1. september n.k og tekur til tannréttingaþjónustu á eigin stofum tannréttingasérfræðinga fyrir sjúkratryggða einstaklinga. Undir samninginn falla bæði almennar tannréttingar barna, þar sem Sjúkratryggingar greiða tannréttingastyrk sem og nauðsynlegar tannréttingar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Samhliða gildistöku samningsins munu styrkir vegna almennra tannréttinga hækka.

Með tilkomu samnings um tannréttingar er staða sjúklinga styrkt verulega. Til viðbótar við aukna greiðsluþátttöku ríksins í tannréttingum kveður samningurinn á um samstarfsnefnd sem stuðlar að auknu samstarfi og samtali milli hagaðila og tekur á álitamálum sem upp koma varðandi framkvæmd samningsins. Jafnframt er kveðið á um virka þátttöku í þróun stafrænna lausna, nýrrar tækni og nýsköpunar sem leiðir til aukinnar hagkvæmni og gæða í þjónustu.

Vinna við breytingar á gildandi reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar stendur nú yfir og stefnt er á að ný reglugerð taki gildi samhliða gildistöku samningsins. Í henni mun koma fram fjárhæð styrks til almennra tannréttinga og nánari útlistun á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.

Samningurinn byggir á að í gildi sé samstarfsamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands en hann var undirritaður í maí á þessu ári.

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra ,,Þetta er mikilvægur samningur sem skapar forsendur til að auka greiðsluþátttöku ríkisins við tannréttingar og draga þannig úr kostnaði þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda, í takt við áherslu ríkistjórnarinnar.“

Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga „Það er ákaflega ánægjulegt að nú hafi í fyrsta sinn tekist að semja um alla þjónustu á sviði tannlækninga og skapa þannig forsendur fyrir aukin stuðning við þá sem mest þurfa á þjónustunni að halda.“

  • Tímamótasamningur um tannréttingar - mynd úr myndasafni númer 1
  • Tímamótasamningur um tannréttingar - mynd úr myndasafni númer 2
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?