Orkan okkar hefur skorað á forseta Íslands að bíða með að staðfesta þriðja orkupakkann þar til Ísland hafi fengið undanþágu frá innleiðingu hans eða þjóðin hafi í þjóðaratkvæðagreiðslu fallist á þær skuldbindingar sem í orkupakkanum felast.
Fulltrúar Orkunnar okkar afhentu Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, áskorun um þriðja orkupakkann í dag. Samtökin skora á forsetann að staðfesta ekki upptöku þriðja orkupakkans nema að sameiginlega EES-nefndin hafi veitt Íslandi undanþágu frá innleiðingu eða að íslenska þjóðin hafi fallist á að undirgangast skuldbindingar orkupakkans í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu samtakanna
„„Úr því sem komið er, sjá samtökin Orkan okkar því ekki önnur úrræði í stöðunni en að skora á forseta Íslands að bíða með að staðfesta þriðja orkupakkann inn í EES-samninginn þar til Ísland hefur fengið undanþágu frá innleiðingu hans eða þjóðin hefur í þjóðaratkvæðagreiðslu fallist á þær skuldbindingar sem í orkupakkanum felast.“ segir í lok bréfsins.“ sem samtökin af hentu forsetanum á fundinum í dag. Í tilkynningunni segir að forsetinn hafi tekið við bréfi samtakanna með áskoruninni þar sem helstu þættir málsins eru raktir og hugsanlegar afleiðingar innleiðingu orkupakkans.
Samtökin afhentu Guðna Th. umsagnir frá liðnu vori um málið ásamt nýlegri gögnum. Þar á meðal er skýrsla samtakanna um áhrif inngöngu Íslands í orkusamband ESB og minnisblöð Arnars Þórs Jónssonar, héraðsdómara, og Tómasar Jónssonar, hæstaréttarlögmanns.