• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Fimmtudagur, 8. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Villandi „eingreiðslutilboð“ Almennrar innheimtu

ritstjorn by ritstjorn
28. september 2020
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
0
Share on FacebookShare on Twitter
Þessa dagana er Almenn innheimta að senda skilaboð til fólks sem tekið hefur smálán og eru til innheimtu hjá fyrirtækinu. Um er að ræða staðlaðan texta þar sem lántakendum er boðið að greiða upp heildarskuld með eingreiðslu undir formerkjum „eingreiðslutilboðs“. Í textanum kemur jafnframt fram að allur áfallinn kostnaður tengdur skuldinni falli niður.
Þeir sem hafa leitað til Neytendasamtakanna hafa allir lagt þann skilning í tilboðið að um sé að ræða endanlegt uppgjör á öllum útistandandi kröfum, enda sérstaklega kveðið á um fjárhæð „heildarskuldarinnar“ og ekki koma fram neinar upplýsingar um kröfunúmer í textanum segi í tilkynningu frá Neytendasamtökunum.
Í öllum málunum sem Neytendasamtökunum hefur borist tengdum „eingreiðslutilboðinu“ hafa útistandandi kröfur verið fleiri en ein. Heildarfjárhæð allra útistandandi krafna er þar með mun hærri en sem nemur þeirri fjárhæð sem kemur fram í tilboðinu. Lántakendur eru því flestir undir því yfirskini að um kostaboð sé að ræða þar sem dágóður afsláttur yrði veittur gegn uppgreiðslu krafnanna.

Svona hljóða skilaboðin frá Almennri innheimtu:

„Góðan dag
Við höfum til innheimtu skuld frá kröfuhafanum Ecommerce2020 ApS, sem við viljum bjóða þér að klára fyrir fullt og allt. Okkur langar að koma til móts við þig og fella niður allan áfallinn kostnað á skuldinni. Heildarskuldin í dag er X þar af er höfuðstóllinn Y.
Við viljum bjóða þér að klára málið með eingreiðslu að upphæð Y.
Við sýnum því skilning að þú getir kannski ekki greitt upphæðina strax og því getum við sent þér greiðsluhlekk sem þú getur greitt um mánaðarmótin eða samkvæmt samkomulagi.“
Í ljósi umdeildra og á tíðum ólögmætra starfshátta Almennrar innheimtu hvöttu Neytendasamtökin lántakendur til að fá nánari skýringar á þessu „kostaboði“. Í ljós kom að einungis er verið að bjóða afslátt af einni kröfu en ekki heildarskuldinni. Orðalag „eingreiðslutilboðsins“ er að mati samtakanna afar villandi þar sem auðveldlega má misskilja orðalag um heildarskuld sem allar útistandandi kröfur.
Þar sem Neytendasamtökin hafa séð mörg dæmi  um að Almenn innheimta innheimti ólögmæt lán, og hafi þar að auki sett himinháan innheimtukostnað ofan á slíkar kröfur, vara þau fólk við að taka tilboðinu nema ljóst sé að viðkomandi skuldi raunverulega höfuðstól lánanna.
Því miður er ekkert opinbert eftirlit með fyrirtækinu sem virðist geta hagað sér að vild og hefur þar af leiðandi verið mikilvægur hlekkur í því smálánabraski sem fengist hefur að viðgangast hér á landi og reynst mörgum dýrkeypt.

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Leynd yfir ráðstöfun og sölu ríkiseigna

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Árni Johnsen er látinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Viltu fá útborgað í evrum?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Fullur í sundi og annar sviptur hátalara

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?