• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þeim sem eru á örorkubótum eða endurhæfingalífeyri hefur fjölgað um 4.300 manns

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Það er mikið áhyggjuefni að á örfáum árum hafi þeim sem eru á örorkubótum eða endurhæfingalífeyri fjölgað um 4.300 manns. Það eru u.þ.b. jafn margir og búa í Vestmannaeyjum. Okkur er að mistakast að ná utan um þennan vanda og verðum að bregðast við.
Ég heyri ákall Öryrkjajabandalagsins um að hækka bætur enn frekar. Myndband þeirra er hins vegar misheppnað, þótt kakan sé falleg eftirmynd af þeirri sem ég gerði. Það dugar ekki til, því það er rangt að öryrkjar fái sífellt minni sneið. Kakan hefur stækkað og almannatryggingar hafa fengið stærri sneið af stækkandi köku. Um það vitna staðreyndir. Og við tókum 4 milljarða til hliðar til að styrkja þessi kerfi enn frekar á þessu kjörtímabili.
Enn er óráðstafað um fjórðungi þeirrar fjárhæðar en um að að ræða varanlega 4 milljarða hækkun á þessum lið almannatrygginga.
Helsta áhyggjuefnið er að við munum ekki geta stutt nægilega við þá sem eru í mestri þörf ef við fáum sífellt hærra hlutfall landsmanna á örorku eða endurhæfingalífeyri. Eftir því sem þessi staða versnar dregur úr getu okkar til að standa myndarlega við bakið á þeim sem aldrei fengu tækifæri í lífinu eða urðu fyrir áföllum og þurfa á stuðningi að halda.
—

Um fjórðungur allra skatttekna og tryggingagjalda fer til almannatrygginga

Sífellt aukinn hluti verðmætasköpunar hagkerfisins rennur til tilfærslukerfa og fjárframlaga ríkissjóðs sem hafa verið í stöðugum vexti síðustu ár. Í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag í ríkisstjórn um framlög til almannatrygginga (að frátöldum atvinnuleysisbótum) kemur fram að þau hafa nær tvöfaldast frá árinu 2013 miðað við verðlag hvers árs og nema nú 642 þúsund krónum á hvern landsmann aldrinum 18-67 ára.

 

Umfang samneyslu ríkissjóðs (þ.e. launaútgjöld, kaup á vöru og þjónustu og afskriftir að frádreginni sölu á vöru og þjónustu) hefur að meðaltali numið um 12% af vergri landsframleiðslu (VLF) frá árinu 1998 og hefur samneyslan þannig að jafnaði haldið í við vöxt hagkerfisins. Til samanburðar er áætlað að umfang tilfærslukerfa og fjárframlaga, að frátöldum atvinnuleysisbótum, verði 14,6% af VLF árin 2018-2025. Þetta er að meðaltali 2% hærra en umfangið var á árinu 1998. Rekja má þróunina að miklu leyti til þeirra fjárlagaliða sem tengjast lífeyristryggingum og bótum skv. lögum um félagslega aðstoð. Gert er ráð fyrir mikilli hækkun útgjalda til almannatrygginga á næsta ári og að þau nemi rúmum 165 ma.kr. árið 2021 eða sem nemur 5,4% landsframleiðslunnar samanborið við 3,8% árið 2015.

 

Í ljósi þess tekjufalls sem ríkissjóður stendur frammi fyrir vegna heimsfaraldurs kórónuveiru mun hlutfall framlaga almannatrygginga að óbreyttu nema tæpum fjórðungi tekna ríkissjóðs af skatttekjum og tryggingagjaldi á næsta ári í stað 14-15% áður. Ljóst er að svo hraður vöxtur þessara tilfærsluútgjalda er ekki sjálfbær til lengri tíma litið og mun að öðru óbreyttu ryðja frá sér framlögum til annarra tilfærslukerfa, opinberrar þjónustu eða fjárfestingar á vegum ríkisins.

Fjölgun lífeyrisþega og hærri bætur helsta skýringin

Helsta skýringin á hærri framlögum til almannatrygginga er fjölgun lífeyrisþega og hækkun bóta sem leiddi m.a. af umtalsverðum breytingum sem gerðar voru á almannatryggingakerfinu og tóku gildi í upphafi árs 2017. Þá voru bótaflokkar ellilífeyris sameinaðir, almennt frítekjumark innleitt og bætur hækkaðar. Sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega var innleitt 2018.

Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fjórðungi fleiri en 2013

Þá hefur örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum fjölgað síðustu árin. Frá árinu 2013 er fjölgunin um 4.300 manns, eða sem nemur fjórðungi. Áætlað er að örorkulífeyrisþegum fjölgi að óbreyttu um 2% á ári að jafnaði á komandi árum.
Alls eru örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar nú 11% mannfjöldans á vinnualdri að innflytjendum undanskildum. Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar með erlent ríkisfang eru einungis um 4% allra þeirra sem fá slíkar greiðslur en þeir eru nú hátt í 20% mannfjöldans á vinnualdri.

 
 
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Brottvísanir erlendra fanga frá landinu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Tvö embætti forstjóra heilbrigðisstofnanna laus

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?