• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

COVID-19: Hertar sóttvarnaaðgerðir á landamærum vegna nýja kórónaveiruafbrigðisins Ómíkron

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. nóvember 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Öllum sem koma til landsins og hafa dvalið meira en sólarhring síðastliðna 14 daga á skilgreindum hááhættusvæðum verður skylt að fara í PCR-próf við komuna til landsins og síðan í sóttkví sem lýkur með öðru PCR prófi fimm dögum síðar.

Þetta gildir um alla sem dvalið hafa á hááhættusvæði, hvort sem þau eru bólusett eða ekki eða með sögu um fyrri sýkingu af Covid-19. Þessir einstaklingar þurfa jafnframt að framvísa neikvæðu Covid-prófi við byrðingu erlendis fyrir komuna til Íslands (þó að undanskildum þeim sem eru með tengsl við Ísland).

Enn fremur ber þeim að fylla út rafrænt forskráningareyðublað þar sem m.a. kemur fram hvar þau hyggjast dvelja í sóttkví á Íslandi. Börn fædd 2016 og síðar eru undanskilin þessum reglum. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Til hááhættusvæða teljast Botsvana, Esvatíní, Lesótó, Mósambík, Namibía, Simbabve og Suður-Afríka. Sóttvarnalæknir hefur jafnframt gefið út tilmæli þar sem Íslendingar eru hvattir til að ferðast ekki til þessara landa, óháð bólusetningarstöðu eða sögu um fyrri sýkingu af völdum Covid-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi frá og með sunnudegi 28. nóvember.

Nánar um reglur á landamærunum fyrir þá sem koma frá hááhættusvæðum:

Forskráning: Skylt er að fylla út rafrænt eyðublað fyrir komuna til landsins þar sem fram koma m.a. upplýsingar um hvar viðkomandi hefur dvalið og hvar hann mun dvelja í sóttkví á Íslandi. Forskráning fer fram á vefnum covid.is.

Covid-próf fyrir byrðingu: Við byrðingu erlendis ber að framvísa neikvæðu Covid-19 prófi, annað hvort PCR-prófi eða mótefnavakaprófi (antigen-hraðprófi) sem er ekki eldra en 72 klukkustunda gamalt. Þau sem geta framvísað gildu vottorði sem sýnir að 14-180 dagar eru liðnir frá COVID-19 sýkingu eru undanþegin þessari skyldu, einnig börn fædd 2016 og síðar og sömuleiðis fólk sem er búsett á Íslandi eða hefur hér tengslanet.

Við komuna til Íslands: Allir sem koma frá hááhættusvæði, hvort sem þau eru bólusett eða ekki og óháð aldri, fara í PCR-próf við komuna til landsins og dvelja svo í fimm daga í sóttkví sem lýkur með öðru PCR-prófi.

Eins og fram kemur í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis er talin hætta á því að Ómíkron; hið nýja afbrigði kórónaveirunnar, sé meira smitandi en delta-afbrigði veirunnar, valdi hugsanlega alvarlegri sýkingu og að bóluefni sem gefin hafa verið veiti ekki jafnmikla vörn fyrir þessu stökkbreytta afbrigði veirunnar og öðrum þekktum afbrigðum. Ráðherraráð Evrópusambandsins hefur því hvatt aðildarþjóðir til að bregðast við með framangreindum aðgerðum meðan verið er að kanna betur eiginleika veirunnar.

  • Reglugerðin
  • Minnisblað sóttvarnalæknis, dags. 27.11.2021
Umræða
Share20Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    210 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?