• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hvatt til skráningar í bakvarðasveit

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. desember 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Félagsmálaráðuneytið hvetur fólk til að skrá sig á lista bakvarðasveitar velferðarþjónustunnar. Velferðarþjónustan sinnir þjónustu við viðkvæma hópa og mikilvægt er að hún falli ekki niður þrátt fyrir það ástand sem nú ríkir. Óskað er eftir fólki sem getur starfað í þjónustu við fatlað fólk, aldraða, heimilislausa og börn með sértækar stuðningsþarfir. Óskað er sérstaklega eftir fólki með reynslu og menntun í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Félagsmálaráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu, hlutastarf eða fullt starf allt eftir því hvað hentar viðkomandi. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á þeirri starfstöð sem um ræðir hverju sinni.

Athugið að einnig er starfandi sérstök bakvarðasveit fyrir heilbrigðisþjónustu, sjá hér.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag ráðninga

  • Tímabil: Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig í allt að tvo mánuði.
  • Laun: Laun taka mið af kjarasamningum viðeigandi stéttarfélags og þess sveitarfélags eða stofnunar sem um ræðir hverju sinni.
  • Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa: Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum.Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði viðeigandi kjarasamninga.
  • Hvar skráir fólk sig í bakvarðasveitina: Skráning í bakvarðasveit.  
  • Hvernig verður staðið að ráðningum:  Þau sveitarfélög sem óska eftir að ráða starfsfólk úr bakvarðarsveit velferðarþjónustunnar nálgast upplýsingar um liðsauka hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    • Félagasamtök, NPA þjónustuþegar og aðrir leita til viðkomandi sveitarfélags óski þeir liðsinnis bakvarðasveitar.
  • Ef hjúkrunarheimili þarfnast liðsauka vegna COVID-19 er þeim bent á að hafa samband við félagsmálaráðuneytið í síma 545-8100 eða með því að senda póst á vidbragd@frn.is.
  • Stofnanir munu sjálfar hafa samband við bakverði og ráðningarsambandið verður á milli einstaklingsins og viðkomandi stofnunar eða sveitarfélags eftir því sem við á hverju sinni.

Hægt er að senda tölvupóst á vidbragd@frn.is ef þú þarfnast aðstoðar vegna Covid-19.

Umræða
Share5Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?