Frá og með næstu áramótum verður sala á Viagra gefin frjáls í apótekum án þess að neytandinn hafi áður ráðfært sig við lækni eða þurfi að framvísa lyfseðli í Noregi. Sami háttur hefur verið á í mörgum öðrum löndum eins og t.d. á Spáni en í þeim löndum er hægt að kaupa Viagra í apótekum án þess að það sé eins flókið ferli eins og t.d. á Íslandi.
,,Hugmyndin um að gera lyfið sem er stinningarlyf, aðgengilegra og draga þannig úr ólöglegri sölu Viagra á internetinu er slæm hugmynd“ segir Tore Holte Follestad, kynsjúkdómalæknir.
Það kerfi getur haft banvænar afleiðingar og skaðað líf og heilsu manna. Viagra er lyf með mörgum aukaverkunum svo það er mjög mikilvægt að þú ráðfærir þig við lækninn þinn fyrir notkun.“
Með nýju lögunum, verða læknar ekki upplýstir um notkun neytenda á Viagra og notkunin verður heldur ekki sett í lyfjagáttina eða í sjúkraskrá neytandans. Læknirinn kemst eingöngu að notkuninni ef að neytandinn, segir honum að hann sé að nota stinningarlyfið.
,,Ef þú notar Viagra ásamt öðrum tegundum lyfja, getur þú fengið alvarlegan hjarta- og æðasjúkdóm. Það getur hugsanlega verið banvænt“ segir Follestad. Hann er harðlega gagnrýninn á þá staðreynd að starfsmenn lyfjafræðinga leiðbeina fólki með stinningarvandamál.
,,Við getum ekki skilið hvernig neytandinn á að fá aðstoð frá fólki sem hefur ekki þekkingu eða reynslu af því að ræða við sjúklinga. Þegar öllu er á botninn hvolft hefur fólk heimilislækni til þess að fá þá aðstoð.
Til þess að fá Viagra í apótekinu verður fyrst að svara nei við nokkrum spurningum um eigin heilsu og mögulega notkun annarra lyfja. Ekki er spurt um hvort stinningarvandinn sé af öðrum orsökum en sómatískum sjúkdómi.“
,,Samkvæmt tölum úr lyfseðilsskránni hefur styrkleiki meðal karla á aldrinum 15-29 ára aukist mikið á síðustu tíu árum. Mjög margir ungir menn undir fertugu þurfa sjaldan Viagra.“ Sagði Tore Holte Follestad en málið hefur hlotið samþykkki stjórnvalda í Noregi og sala á Viagra fer jafnframt fram í öðrum löndum án aðkomu lækna.