• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stækkun hjúkrunarheimilisins Eyrar á Ísafirði – framkvæmdir hefjast í haust

Hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði er nýlegt en það var tekið í notkun árið 2015

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Hjúkrunarrýmum á Ísafirði fjölgar um tíu með viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði. Samningur heilbrigðisráðuneytisins og Ísafjarðarbæjar um framkvæmdina hefur verið undirritaður. Framkvæmdir hefjast í haust. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tekið í notkun snemma árs 2024. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er rúmar 550 milljónir króna og greiðir ríkissjóður 85% kostnaðarins á móti 15% bæjarfélagsins.

„Það er virkilega ánægjulegt að undirrita samning eins og þennan sem felur í sér aukna og bætta þjónustu við þá einstaklinga í hópi aldraða sem þurfa mestrar umönnunar við. Ég veit að þetta er kærkomin viðbót fyrir íbúa á þessu svæði“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sem greindi frá undirritun samningsins þegar hann ávarpaði ársfund Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sl. föstudag.

Hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði er nýlegt en það var tekið í notkun árið 2015. Heimilið var byggt fyrir 30 íbúa en við hönnun þess gert ráð fyrir möguleika á frekari stækkun í framtíðinni fyrir tíu íbúa, líkt og nú hefur verið ákveðið. Stækkunin er í samræmi við áætlaða þörf fyrir fjölda hjúkrunarrýma á svæðinu og forgangsröðun verkefna samkvæmt framkvæmdaáætlun um byggingu hjúkrunarrýma til ársins 2024.

Hjúkrunarheimilið Eyri er á einni hæð og stendur við hlið sjúkrahúss Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er tengigangur á milli bygginganna. Í því eru þrír tíu herbergja kjarnar sem hver og einn tengist sameiginlegu þjónusturými hjúkrunarheimilisins. Viðbyggingin mun tengjast miðrýminu á svipaðan hátt þar sem íbúar njóta félagsstarfs, iðjuþjálfunar og annarrar þjónustu. Hönnun og skipulag heimilisins er byggð á þeirri hugmyndafræði sem fram kemur í opinberum viðmiðum um skipulag og starfsemi hjúkrunarheimila. Áhersla er lögð á að skapa aðstæður sem líkjast eins og kostur er húsnæði, skipulagi og aðstæðum á einkaheimilum fólks, í vistlegum umhverfi þar sem mannréttindi, mannúð og virðing eru í heiðri höfð.

Unnið er að fullnaðarhönnun viðbyggingarinnar. Áformað er að framkvæmdir geti hafist á þriðja ársfjórðungi þessa árs í kjölfar útboðs og að taka megi heimilið í notkun snemma árs 2024.

Umræða
Share25Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    148 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?