Varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var í gær leystur undan vinnuskyldu eftir að lögreglustjóri fékk í hendurnar gögn sem sýna hann sitja um heimili og vinnustaði fólks, elti það og safnaði um það persónuupplýsingum, á meðan hann var við skyldustörf.
Þetta kemur fram í frétt ríkisútvarpsins og er sagt að hafi verið liður í háleynilegum njósnaaðgerðum sem lögreglumaðurinn þáði greiðslur fyrir, án vitundar yfirmanna sinna. Eftirfarandi er frétt RÚV:
,,Gögnin, sem Kveikur hefur undir höndum, varpa ljósi á háleynilegar, tugmilljóna króna njósnaaðgerðir haustið 2012. Fyrirtækið sem ráðið var til að stunda njósnirnar var stofnað af tveimur fyrrverandi lögreglumönnum. Þeir greiddu öðrum lögreglumanni, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, fyrir svokallaða skyggingu, að sitja um heimili og vinnustaði fólks og skrásetja ferðir þess.
Á að baki áratugaferil innan lögreglunnar
Lögreglumaðurinn hafði, líkt og aðrir starfandi lögreglumenn, aðgang að upplýsingakerfi lögreglunnar, LÖKE. Það hefur að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar um fólk.
Lögreglumaðurinn á að baki áratugaferil. Hann hefur starfað hjá sérsveit ríkislögreglustjóra og síðustu ár sem varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar. Hann var leystur undan vinnuskyldu í gær, eftir að Kveikur leitaði viðbragða frá yfirmönnum hans.
Málið er komið til ríkissaksóknara sem mun rannsaka það og leggja mat á það hvort um refsiverða háttsemi hafi verið að ræða.
Undir eðlilegum kringumstæðum væri það undir héraðssaksóknara komið að taka ákvörðun um hvort ákæra eigi í málinu, en eigendur fyrirtækisins sem fór fyrir njósnaaðgerðunum eru báðir fyrrverandi starfmenn embættis sérstaks saksóknara, sem nú er embætti héraðssaksóknara.
Fjallað verður nánar um málið í Kveik klukkan 20:05.“ Segir á vef ríkisútvarpsins.