Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk beiðni um aðstoð á tíunda tímanum í gær frá kanadískri skútu sem stödd var 155 sjómílur suðaustur af Höfn í Hornafirði en þar um borð var maður sem þurfti að komast undir læknishendur
Skútan var stödd 115 sjómílur vestur af færeysku eyjunni Mykines og var ákveðið að færeysk björgunarþyrla héldi á staðinn. Þyrlan var komin á vettvang um klukkustund síðar en vegna lélegs skyggnis og sjólags tókst ekki að hífa manninn um borð í þyrluna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Skútan hélt því í átt til Hafnar í Hornafirði og áhöfn hennar óskaði eftir því að bátur héldi til móts við hana þar sem erfiðlega hafi gengið að koma manninum um borð í þyrlu. Björgunarskipið Ingibjörg, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hélt á ellefta tímanum í morgun til móts við skútuna og mun flytja manninn til Hafnar í Hornafirði.
Mikil þoka er á svæðinu og er flugvöllurinn á Höfn lokaður. Landhelgisgæslan mun áfram fylgjast með framvindu aðgerðanna í dag og hefur þyrlu til taks ef þokunni léttir. Áætlað er að björgunarskipið Ingibjörg verði komið að skútunni síðdegis.