7.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Kylie Jenner þénar 105 milljónir á hverri Instagram mynd

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Kylie Jenner þénar 105 milljónir á hverri Instagram mynd

Í annað sinn á tveimur árum hefur Hopper HQ greiningafyrirtækið gert lista yfir það hverjir eru að þéna mest á forritinu Instagram sem að hægt er að deila inn á persónulegum myndum. Fjórir af þeim fimm tekjuhæstu, eru konur.

Kylie Jenner, yngsta dóttirin í Kardashian fjölskyldunni, er á toppi listans eftir að hafa tekið við hásætinu af Selena Gomez frá því á síðasta ári. Hún hefur 111 milljón fylgjendur og samkvæmt Hopper HQ, nær hún að þéna eina milljón dollara á Instagram fyrir hverja mynd, sem samsvarar 105 milljónum króna. Með því að kynna sjálfa sig.
,,Ég er ekki undrandi að Kylie Jenner sé efst á listanum á þessu ári. Þegar kemur að markaðssetningu á samfélagsmiðlum er hún ótrúlega hæfileikarík, segir Mike Brendar, sem stofnaði Hopper HQ.
Cristiano Ronaldo knattspyrnumaðurinn frægi, er eini maðurinn í topp 5 listanum og er í þriðja sætinu, rétt á eftir poppstjörnunni Selena Gomez, en á undan Kim Kardashian West og listamanninninum Beyoncé Knowles.
Hér er listinn yfir tíu tekjuhæstu Instagram stjörnurnar:

  • 1. Kylie Jenner          | 105 milljónir fyrir hverja mynd,
  • 2. Selena Gomez      | 85,0 milljónir fyrir hverja mynd,
  • 3. Cristiano Ronaldo | 77,0 milljónir fyrir hverja mynd,
  • 4. Kim Kardashian     | 74,5 milljónir fyrir hverja mynd,
  • 5. Beyoncé Knowles  | 74,0 milljónir fyrir hverja mynd,
  • 6. Dwayne Johnson  |  69,0  milljónir fyrir hverja mynd,
  • 7. Justin Bieber         | 66,5 milljónir fyrir hverja mynd,
  • 8. Neymar                 | 64,0  milljónir fyrir hverja mynd,
  • 9. Lionel Messi          | 53,5 milljónir fyrir hverja mynd,
  • 10. Kendall Jenner    | 53,0 milljónir fyrir hverja mynd,

,,Markaðssetning á samfélagsmiðlum hefur vaxið mjög mikið á síðustu árum og er tæki sem að heldur áfram að skila vörumerkjum athygli og frægu fólki. Það er ótrúlegt að sjá árangurinn og hversu mikil áhrif þetta fólk hefur á áhorfendur og aðdáendur þeirra, „sagði Brendar að lokum.