• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 2. ágúst 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eru vegtollar lausnin?

Vegtollar og umferðargjöld

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. júlí 2025
in Fréttir, Neytendur
A A
0

Því miður eru margir sem átta sig ekki á staðbundnum umhverfisgjöldum og reglum og lenda í að fá sendar sektir og kröfur eftir að heim er komið eftir gott frí

FÍB skrifar

Á sumrin ferðast margir í bílaleigubíl, á eigin bíl eða húsbíl um Evrópu. Sá sem er ekki meðvitaður um umhverfissvæði (Low Emission Zone) og vegtolla á þeim slóðum sem farið er um getur átt á hættu að fá háar sektir. Það er einnig hægt að draga úr kostnaði með því að forðast að aka um vegi og svæði þar sem vegtollar og veggjöld eru innheimt og með því að forðast akstur í borgum þar sem krafist er greiðslu vegna aksturs um miðborgarsvæði.

Hraðbrautargjöld eru í mörgum Evrópulöndum. Hefðbundnir vegir geta einnig verið gjaldskyldir og sama á við um jarðgöng, ferjur og brýr. Að auki er orðið algengt að borga þurfi í stærri borgum fyrir akstur um umhverfissvæði með staðbundnum reglum.

Autoroute A2

Veggjöld eru innheimt á mismunandi vegu. Sum lönd hafa mannaðar tollstöðvar við vegi. Í öðrum löndum þarf að kaupa svokallað Vignette, veggjalda ávísun, og fá límmiða sem er límdur inn á framrúðuna. Stundum er sjálfvirkt myndavélaeftirlit með ökutækjum. Þá þarf að hlaða niður rafrænni greiðslulausn, sem getur verið mismunandi eftir löndum. Greiðslulausnirnar eru virkjaðar með svipuðum hætti og bílastæðaöppin á Íslandi. Á öðrum svæðum þarf að greiða veggjald inn á reikning innan ákveðins tíma eða greiða með reiðufé á sérstökum greiðslustöðvum.

Það er á ábyrgð ökumanns að vera upplýstur um umferðarreglur og innheimtu gjalda og tolla á þeim slóðum sem farið er um

Margar borgir í Evrópu takmarka bílaumferð um miðbæi. Stundum er bann á bíla sem uppfylla ekki útblástursviðmið og einni er bann á ökutæki sem ekki hefur verið aflað tilskilinna leyfa með greiðslu til aksturs um svæðið. Víða eru kröfur um sérstaka umhverfismiða sem líma þarf á  áberandi stað í framrúðu bíls.

Það er á ábyrgð ökumanns að vera upplýstur um umferðarreglur og innheimtu gjalda og tolla á þeim slóðum sem farið er um. Það eru ekki til staðar neinar samhæfðar reglur innan Evrópska efnahagssvæðisins um tolla- og gjaldafrumskóginn í Evrópu. Ef ökumaður fer án leyfis um gjaldsvæði eða er á ökutæki sem ekki má aka um ákveðið svæði vegna útblásturskrafna þá kemur sekt sem verður að greiða. Ef sektinni er ekki sinnt getur það kostað viðbótar kröfu um hátt vangreiðslugjald.

Veggjöld og umhverfissvæði á vinsælum áfangastöðum:

  • Belgía: Skráð erlend ökutæki sem aka inn í Antwerpen, Brussel eða Gent verða að uppfylla útblásturskröfur. Skrá þarf ökutækið inn í sérstakan gagnagrunn án endurgjalds. Dísilbílar í Euro 4 útblástursflokki eða lægri greiða gjald.
  • Danmörk: Dísilknúnir bílar verða að uppfylla að minnsta kosti Euro 5 kröfur til að mega aka um umhverfissvæði í Kaupmannahöfn, Óðinsvéum, Árósum og Álaborg. Eftirlitið er rafrænt.
  • Frakkland: Nokkrar borgir hafa innleitt sérstök umhverfissvæði, Zones à circulación restreinte. Til að aka um umhverfissvæði þarf að festa límmiða – Vignette Crit´Air – á framrúðuna. Á nokkrum svæðum eru tímabundin, veðurháð umhverfissvæði, zone de protection de l´air, sem hægt er að virkja frá einum degi til annars.
  • Ítalía: Bannskiltið Zona Traffico Limitato má sjá í mörgum ítölskum borgum. Sá sem brýtur gegn banninu verður ljósmyndaður og sektin send heim til viðkomandi innan Evrópu. Ef ekið er fram hjá ZTL-skiltinu nokkrum sinnum kemur ný sekt í hvert skipti.
  • Holland: Umhverfissvæði með dísilbanni (Milieuzonen). Á við um dísilbíla og þyngri ökutæki. Eftirlit er með sjálfvirkum vegmyndavélum.
  • Noregur: Veggjöld eru kölluð Bompengar og eru nokkuð algeng. Ef ekið er á fólksbíl um Noreg er einfaldast að hlaða niður rafrænni greiðslulausn með bílnúmeri og greiðsluupplýsingum (sambærilegt við bílastæðaapp).
  • Portúgal: Nokkrar borgir hafa takmarkandi umferðarsvæði, þar á meðal Lissabon, þar sem eldri ökutækjum er ekki heimilt að aka af umhverfisástæðum.
  • Spánn: Stærri borgir hafa innleitt láglosunarsvæði sem krefjast losunarmiða – Distintivo Ambiental – á bílinn. Svæðin eru í fjórum stigum, þar sem hæsta stigið leyfir aðeins rafbíla. Erlend ökutæki geta ekki fengið spænsku umhverfismiðana, en umhverfismiðar frá Þýskalandi og Frakklandi eru samþykktir. Einnig eru til staðar reglugerðir, svo sem ýmis akstursbönn í miðborg Madríd, Barcelona og hluta af Valencia.
  • Þýskaland: Um sjötíu þýskar borgir hafa innleitt umhverfissvæðin Umweltzonen. Til að aka um umhverfissvæði þarf að setja límmiða – Feinstaubplakette – á framrúðuna. Þetta á einnig við um rafbíla.
  • Frakkland, Ítalía, Spánn, Portúgal: Flestir hraðbrautir eru í eigu og viðhaldi einkafyrirtækja. Vegtollur er greiddur með reiðufé eða greiðslukorti á mönnuðum tollstöðvum á veginum eða þegar beygt er af vegi. „Frjáls flæði“ með greiðslu á netinu eða á sérstakri þjónustustöð er að verða aðgengilegra og algengara.
  • Austurríki, Sviss, Tékkland, Slóvakía, Slóvenía, Ungverjaland: Þegar ekið er á hraðbrautum er krafa um fyrirfram greiddan límmiða á framrúðunni eða stafræna útgáfa af rafrænni vignettu. Vínjettur eru fáanlegar í styttri eða lengri tíma. Í Sviss aðeins hægt að kaupa heilt ár í senn og ökutæki án tollamiða fá sektarkröfu. Húsbílar yfir 3.500 kg að þyngd geta þurft að greiða til viðbótar kílómetragjald.
  • Búlgaría, Rúmenía: Vínjettukerfi fyrir alla vegi, ekki bara hraðbrautir.
  • Pólland, Króatía, Serbía, Norður-Makedónía, Grikkland, Tyrkland: Gjaldskyldar hraðbrautir að fullu eða að hluta. Greiðsla á mönnuðum tollstöðvum.

Almennt yfirlit yfir útblástursflokka fólksbíla:

Ár Bensínbílar Dísilbílar
1997  Umhverfisflokkur 1 ≈ Euro 2 Umhverfisflokkur 1 ≈ Euro 2
2000   Umhverfisfl. 2000 ≈ Euro 3 Umhverfisfl. 2000 ≈ Euro 3
2005   Umhverfisfl. 2005 ≈ Euro 4 Umhverfisfl. 2005 ≈ Euro 4
2009  Euro 5 Euro 5 (með DPF)
2014   Euro 6 Euro 6
2019   Euro 6d-TEMP Euro 6d-TEMP
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    Svipting ökuréttinda mun gilda um alla Evrópu

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Rústaði hjónabandinu, missti forræðið og reyndi sjálfsvíg

    98 deilingar
    Share 59 Tweet 16
  • Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland, Faxaflói og Miðhálendi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Eldur kviknaði í hjólageymslu í fjölbýlishúsi

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    845 deilingar
    Share 338 Tweet 211
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?