• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vill hafa kvótakerfið óbreytt

Vill hafa kvótakerfið óbreytt

83% landsmanna vilja að auðlindagjöld séu hærri en þau eru

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. ágúst 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Í skýrslu matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, (VG), er lagt til að kvótakerfið verði óbreytt en útreikningur veiðigjalds einfaldaður.

Alls eru 83% landsmanna á því að auðlindagjöld ættu að vera nokkuð eða mun hærri en þau eru, samkvæmt skoðanakönnun sem unnin var fyrir starfshópinn. Lagt er til að lögfest verði í stjórnarskrá ákvæði um að fiskveiðiauðlindin sé sameign þjóðarinnar.

Lokaniðurstöður starfshópa Auðlindarinnar okkar voru kynntar nú í hádeginu og var kynningunni streymt. Skýrslan Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur var gefin út á sama tíma.

Yfirlýsing nefndar matvælaráðherra

Vinnan sem unnin hefur verið með Auðlindinni okkar er mikilvægt skref til að skapa skilyrði til aukinnar sáttar um sjávarútveg. Hagsmunir almennings eru settir í forgrunn og endurspeglast til dæmis í sterkum umhverfisáherslum og tillögum um aukið gagnsæi og hækkun veiðigjalda í samræmi við fjármálaáætlun“, segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Niðurstöður starfshópanna eru settar fram á grunni þriggja stoða sjálfbærrar þróunar, umhverfi, efnahag og samfélagi.

Í skýrslunni eru sett fram drög að stefnu um sjávarútveg, greining á niðurstöðum könnunar um viðhorf Íslendinga til sjávarútvegs birt og mat á þjóðhagslegum ávinningi fiskveiðistjórnunarkerfisins sett fram. Á grundvelli tillagna starfshópanna er sett fram tillaga að aðgerðaáætlun, þar sem lýst er markmiðum aðgerða, ábyrgðaraðila og tímamörkum.

Einnig er í skýrslunni umfjöllun um vísbendingar um byggðafestuáhrif sjávarútvegs sem Sveinn Agnarson og Vífill Karlsson unnu fyrir matvælaráðuneytið ásamt umfjöllun um tilraun með leigu aflahlutdeildar á markaði eftir Daða Má Kristófersson og Gunnar Tryggvason. Þá er þar einnig að finna vangaveltur nokkurra einstaklinga um sáttina um sjávarútveg.

Skýrslan hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Hægt er að senda inn umsagnir eða ábendingar til og með 26. september nk.

Innsendar umsagnir og athugasemdir verða hafðar til hliðsjónar við vinnslu frumvarps til heildarlaga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar sem áformað er að verði lagt fram á Alþingi vorið 2024. Kynning skýrslu starfshópanna og þeirra tillagna sem þar eru fram settar marka því ekki endalok vinnunnar, heldur upphaf að frekari umræðu og vinnu um málefnið svo sem í gegnum samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu og samráðsgátt stjórnvalda.

Skýrsluna má nálgast hér og streymi frá kynningu hér.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?