• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 26. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

ÖMURLEG ÞJÓNUSTA HJÁ PLAY – HUNDSA RÉTTMÆTAR KVARTANIR FARÞEGA

Play hættir og fellir niður allar ferðir – 400 missa vinnuna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Stjórn Fly Play hf, hefur tekið ákvörðun um að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play.

Tilkynningin er eftirfarandi:

„Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.

Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga á stefnu þess.“

Ekki skilað árangri

„Miklar vonir voru bundnar við breytt viðskiptalíkan félagsins sem kynnt var síðasta haust og þótti á sínum tíma ástæða til töluverðrar bjartsýni. Því miður er nú orðið ljóst að þær breytingar geta ekki skilað árangri sem dugar til að vinna á þeim djúpstæða vanda félagsins sem safnast hefur upp. Eftir á að hyggja hefði þurft að innleiða þær fyrr.“

400 missa vinnuna

Í ljósi ofangreinds bindur PLAY enda á sína starfsemi í dag. Ljóst er að þúsundir farþega þurfa að endurskipuleggja heimför, á um það bil 400 missa vinnuna og samstarfsaðilar fyrirtækisins verða fyrir tjóni. Við þetta tilefni leggja stjórn og stjórnendur PLAY áherslu á að allt hafi verið reynt til þess að niðurstaðan yrði önnur. Þessi ákvörðun er sú allra þungbærasta í stöðunni og er hún aðeins tekin í ljósi þess að aðrar leiðir töldust fullreyndar. Stjórnin biður alla þá sem verða fyrir neikvæðum afleiðingum vegna þessarar niðurstöðu innilega afsökunar.“

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líkamsárás í Túnahverfi og Hamas-samtökin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bankarnir vilja peningana þína

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Viðvörun: Vindhviður 35 m/s og yfir 45 m/s

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?