• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 16. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Grái herinn skorar ríkið á hólm í réttarsölum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. október 2019
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

 

Stofnaður hefur verið sérstakur málsóknarsjóður til að vera fjárhagslegur bakhjarl málaferlanna

Grái herinn, aðgerðarhópur innan Félags eldri borgara í Reykjavík, þingfestir á næstunni mál gegn ríkisvaldinu til að freista þess að fá margumtalaða skerðingu lífeyris almannatrygginga dæmda ólöglega. Sækjendur búa sig undir að málið fari upp í gegnum öll þrjú dómstig landsins, hver svo sem niðurstaðan verði og leitað verði í framhaldinu til Mannréttindadómstóls Evrópu ef nauðsyn krefji.
Finnur Birgisson
Finnur Birgisson talsmaður Gráa hersins

Finnur Birgisson, arkitekt og talsmaður Gráa hersins, upplýsti þetta á fulltrúaráðsfundi Birtu lífeyrissjóðs í síðustu viku. Málflutningsstofa Reykjavíkur flytur málið fyrir hönd þeirra sem höfða það að frumkvæði Gráa hersins og útlit er fyrir að málareksturinn hefjist síðar á þessu ári að sögn Birtu.
Stofnaður hefur verið sérstakur málsóknarsjóður til að vera fjárhagslegur bakhjarl málaferlanna. Stofnendur eru 33 félög eldri borgara í öllum landshlutum og fyrirliggjandi eru loforð frá verkalýðsfélögum um að leggja 2,8 milljónir króna í sjóðinn.
Betur má ef duga skal því ætla má að málskostnaður hlaupi á tugum milljóna króna. Verkalýðshreyfingin lofar frekari stuðningi og gert er ráð fyrir söfnunarátaki þegar fram líða stundir og þörf krefur.
Finnur nefndi ýmis rök fyrir málatilbúnaði Gráa hersins og bar sömuleiðis íslenska lífeyriskerfið saman við erlend eftirlaunakerfi:

  • Skerðing lífeyris almannatrygginga er í mótsögn við forsendur lífeyrissjóða þegar þeir voru stofnaðir á sínum tíma. Þá var litið svo á að lífeyrir úr sjóðunum yrði viðbót við lífeyri almannatrygginga.
  • Skerðing almannatrygginga jafngildir jaðarskattheimtu upp á 65-84% og þar með eignaupptöku.
  • Íslenska kerfið byggist á stærri hluta söfnunar í lífeyrissjóði en gerist annars staðar. Lífeyrir frá ríkinu vegur minna.
  • Útgjöld íslenska ríkisins vegna lífeyris aldraðra eru miklu minni en gerist annars staðar á Norðurlöndum.
  • Tekjutengingar í opinbera kerfinu á Íslandi eru miklu meiri en þekkjast annars staðar.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Alvarleg líkamsárás – tveir í gæsluvarðhaldi

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • ,,Það er eitthvað brotið í íslenska menntakerfinu“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?