• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vel fylgst með hlíðinni ofan Seyðisfjarðar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. október 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Vel fylgst með öllum hreyfingum í hryggnum við Búðará og í hlíðum ofan Seyðisfjarðar

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu hafa mælst áframhaldandi hreyfingar í hrygg við Búðará. Vatnshæð í borholum hefur hækkað lítillega í kjölfar rigninga síðustu daga og virðist sem hreyfingar í hryggnum séu í beinu sambandi við grunnvatnsstöðu.

Ekki er gert ráð fyrir mikilli úrkomuákefð næstu daga. Vel er þó fylgst með öllum hreyfingum sem fyrr í hlíðum ofan Seyðisfjarðar. Engar hreyfingar hafa mælst annarsstaðar en í hryggnum. Íbúar eru áfram hvattir til varkárni á göngustígum meðfram Búðará og annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum. Þá eru allir þeir sem leið eiga um Hafnargötu við Búðará og utan við Múla einnig beðnir um að sýna varkárni.

Til að auka enn öryggi þeirra sem leið eiga um Hafnargötu við Búðará hefur hlíðin þar fyrir ofan nú verið lýst upp. Þar er um bráðabirgðaútfærslu að ræða. Unnið er að varanlegri lausn. Enn er í gildi óvissustig almannavarna á Seyðisfirði. Minnt er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Á vef Veðurstofu Íslands er tilkynningarborði sem uppfærður er daglega um Seyðisfjörð þar sem hægt er að fá ítarlegri upplýsingar um vöktun og fleira, skoða staðsetningu svæðisins er um ræðir og hreyfingar á speglum.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Tvö embætti forstjóra heilbrigðisstofnanna laus

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?