Hugleiðingar veðurfræðings
Lægðardragið sem olli snjókomunni á suðvesturhluta landsins í gær er nú yfir Suðausturlandi, þar mun nokkuð snjóa fram eftir morgni en styttir líklega upp þegar líður á daginn. Annars verður norðlæg átt á landinu í dag, 5-13 m/s og éljagangur um landið norðanvert, en bjart að mestu á Suðvesturlandi. Frost 0 til 7 stig yfir daginn, en allvíða kaldara í kvöld og nótt.
Í fyrramálið verður lægð sem nú er austur af Jan Mayen skammt fyrir norðan land. Þá mun blása nokkuð norðantil á landinu, vestan 10-18 m/s þar og snjókoma með köflum, en dregur úr vindi þegar líður á morgundaginn. Í öðrum landshlutum verður vindur fremur hægur og yfirleitt þurrt, en þó má búast við stöku éljum við ströndina. Áfram svalt í veðri.
Annað kvöld nálgast næsta lægð úr suðaustri. Henni fylgir talsvert hlýrra loft en verið hefur og á föstudag er útlit fyrir ákveðna norðaustanátt með vætusömu veðri, einkum á Suðaustur- og Austurlandi. Þar sem snjóað hefur síðustu daga má búast við töluverðri hláku og er fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum. Spá gerð: 29.10.2025 06:46. Gildir til: 30.10.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðlæg átt 5-13 m/s. Él um landið norðanvert og dálítil snjókoma eða slydda á Suðausturlandi, en bjart að mestu suðvestantil. Frost víða 0 til 7 stig yfir daginn.
Vestan 10-18 norðantil í fyrramálið og snjókoma með köflum, en dregur síðan úr vindi. Mun hægari og yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum, en stöku él við ströndina. Áfram svalt.
Vaxandi norðaustanátt seint annað kvöld við austurströndina með dálítilli snjókomu eða slyddu.
Spá gerð: 29.10.2025 07:50. Gildir til: 31.10.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Gengur í norðaustan 13-20 m/s, en 18-25 suðaustanlands fram eftir degi. Rigning eða slydda með köflum, en talsverð rigning austantil og á Ströndum. Hlýnandi veður, hiti 2 til 8 stig seinnipartinn.
Á laugardag:
Austan og norðaustan 8-15, en hvassviðri norðvestantil. Rigning eða slydda með köflum, en snjókoma og skafrenningur á Vestfjörðum. Hiti 1 til 9 stig, mildast sunnanlands.
Á sunnudag:
Norðaustan 8-15 norðvestantil, en annars hægari. Snjókoma eða slydda á norðanverðu landinu, en lengst af þurrt sunnan heiða. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á mánudag:
Norðlæg átt og él, en bjart að mestu sunnanlands. Hiti um eða yfir frostmarki.
Á þriðjudag:
Breytileg átt og stöku skúrir eða él norðantil. Úrkomulítið sunnanlands framan af degi, en vaxandi sunnanátt með slyddu eða rigningu eftir hádegi. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 29.10.2025 08:29. Gildir til: 05.11.2025 12:00.

