• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 6. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bankarnir vilja peningana þína

Átján milljónum úthlutað til verslunar í dreifbýli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til verslana í dreifbýli. Að þessu sinni var átján milljónum kr. úthlutað til sex verslana í dreifbýli fyrir árið 2026. Í tveimur tilvikum verða styrkirnir nýttir til opna verslun að nýju, á Stöðvarfirði og Þingeyri.

Markmiðið með styrkjunum er að styðja við dagvöruverslanir í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum á fámennum markaðssvæðum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Ýmist eru veittir rekstrarstyrkir eða styrkir til endurbóta eða sjálfvirknivæðingar. Styrkirnir eru veittir á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Samtals bárust tíu umsóknir fyrir samtals 64,4 m.kr. Eftirtaldar verslanir fengu styrki:

  • B12-Bryggjan ehf. á Þingeyri – 4 m.kr. vegna opnunar verslunar.
  • Bakka-Búðin ehf. á Reykhólum – 3 m.kr. vegna rekstrar.
  • Hríseyjarbúðin ehf – 3 m.kr. vegna rekstrar.
  • Stöðfirska verzlunarfélagið ehf – 2 m.kr. vegna opnunar verslunar á Stöðvarfirði.
  • Verslunarfélag Drangsness ehf – 3 m.kr. vegna rekstrar.
  • Verzlunarfjelag Árneshrepps ehf – 3 m.kr. vegna rekstrar í Norðurfirði.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerðu tillögur til ráðherra. Í valnefnd sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Seðlaban­kinn hætt­ir gjal­dey­r­is­kaup­um

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Kortisólskortur drepur – sterar bæla kortisól, segir Helga Ágústa innkirtlalæknir

    723 deilingar
    Share 499 Tweet 93
  • Ráðherra útskýrir ákvörðun vegna embættis skólameistara

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?