Foreldrajafnrétti birti þessa áminningu til fullorðins fólks á vef sínum og minnir á að börn séu ekki eingetin eftir skilnað þó svo þau séu m.a.s. skráð þannig í gallaða íslenska kerfinu. Íslenska ríkið skilgreinir það foreldri sem barnið hefur ekki lögheimili hjá, sem barnlausan einstæðing. Þar sem börnin koma ekki fram á skattframtali viðkomandi eða annarstaðar í kerfinu. Ríkið sviptir með þeim hætti þann aðila foreldratitlinum og réttindum þess aðila sem foreldris og allt réttlæti og jafnrétti fær þá að fljúga út um gluggann, eins og ýmis samtök hafa bent á á undanförnum áratugum.
Foreldraútilokun er alvarlegt tilfinningalegt ofbeldi gagnvart barni
,,Nú er tími jólaboðanna. Þó fæstir séu að bera sorgir sínar á torg eru margir stólar auðir í jólaboðunum, margir foreldrar, afar og ömmur sem finna sárt til þess að hafa misst samband við börnin sín og barnabörn vegna foreldraútilokunar.
Ofbeldið skaðar barnið alla ævi
Foreldraútilokun er alvarlegt tilfinningalegt ofbeldi gagnvart barni sem það bíður varanlegan skaða af. Bæði mæður og feður eru útilokuð, bæði feður og mæður beita útilokun. Vinir og ættingjar sem finnst undarlegt að barn sem fyrir skilnað átti ástúðlegt samband við foreldri sitt vilji nú ekkert með það hafa eru oft í jólaboðum að reyna spyrja varfærnislegra spurninga. Samtölin gætu t.d. verið svona:
Er hann ekkert í sambandi við pabba sinn?
– Nei, því miður. Ég er búin að reyna allt sem ég get til að reyna að fá hann til að hafa samband við pabba sinn en hann er bara svo hrikalega sár út í hann eftir allt sem gekk á. Segist ekkert vilja hafa með hann að gera. Svo á hann náttúrulega nýjan pabba núna sem er alveg yndislegur við hann og hefur í raun gengið honum í föður stað. Maður auðvitað vonar að þetta lagist með tímanum en ég er ekki bjartsýn.
Þessar spurningar gera því miður ekkert gagn. Þarna er verið að spyrja gerandann í ofbeldinu út í málið og gefa honum tækifæri á að breiða út lygasögu sem felur ofbeldið.
Þetta er ekki flókið. Ef barn sem fyrir skilnað átti gott samband við foreldri sitt vill ekki sjá það eftir skilnað eru allar likur á að það sé beitt tilfinningalegu ofbeldi sem gengur út á að láta það hafna þessu foreldri. Það ofbeldi mun skaða barnið alla ævi. Látið ekki ljúga að ykkur yfir hátíðarnar. “Segir á vef samtakanna.