• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 28. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stærsta skaðabótamál Íslandssögunnar – ,,Tugþúsundir lánþega eiga rétt á skaðabótum!''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. janúar 2019
in Innlent, Viðskipti
A A
0

,,Tugþúsundir lánþega eiga rétt á skaðabótum! Stærsta skaðabótamál Íslandssögunnar verður dómtekið miðvikudaginn 30. janúar.“ Þannig hljómar fréttatilkynning frá Hagsmunasamtaka heimilanna vegna verðtryggðra neytendalána.

Ásta Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna

,,…hvort sem Hæstiréttur er ábyrgur fyrir brotinu eða Alþingi, hlýtur niðurstaðan að vera sú sama: Brotið var á neytendum og ríkið er ábyrgt á hvorn veginn sem er.“  ,,Þegar niðurstaða er komin í þetta stærsta hagsmunamál íslenskra heimila, gerum við ráð fyrir að verðtrygging á lánum heimilanna verði afnumin á Íslandi þannig að láns- og vaxtakjör verði hér sambærileg og í þeim löndum sem við miðum okkur almennt við.“
Málflutningur í skaðabótamáli gegn Íslenska ríkinu, nr. E-514/2018, fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 30. janúar kl. 13:15 í dómsal 201.
,,Nú er loksins komið að málflutningi í skaðabótamáli á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna vegna verðtryggðra neytendalána gegn íslenska ríkinu. Það er óumdeilt og var staðfest af EFTA dómstólnum árið 2014, að reglur um upplýsingagjöf til neytenda sem tóku verðtryggð lán, voru þverbrotnar á árunum 1994-2013, þar á meðal í húsnæðislánum frá 2001. Öll verðtryggð neytendalán sem voru veitt á þessu tímabili eru því undir í málinu, en ljóst er að þau skipta tugum þúsunda.
Eftir dóm EFTA dómstólsins árið 2014 um að brotið hefði verið á neytendum, kom Hæstiréttur Íslands sér undan því að úrskurða neytendum í vil með því að vísa ábyrgðinni yfir á Alþingi. Sá dómur gerði þó ekki annað en að tefja málið því hvort sem Hæstiréttur er ábyrgur fyrir brotinu eða Alþingi, hlýtur niðurstaðan að vera sú sama: Brotið var á neytendum og ríkið er ábyrgt á hvorn veginn sem er.
Að ríkið sé orðið skaðabótaskylt í staðinn fyrir bankana er ekki það sem stefnt var að í byrjun, fyrir allt of mörgum árum síðan, þegar málið var höfðað gegn lánveitanda, en fyrst svo er komið má ekki selja bankana frá ríkinu fyrr en búið er að gera þetta mál upp við lántakendur.
Þegar niðurstaða er komin í þetta stærsta hagsmunamál íslenskra heimila, gerum við ráð fyrir að verðtrygging á lánum heimilanna verði afnumin á Íslandi þannig að láns- og vaxtakjör verði hér sambærileg og í þeim löndum sem við miðum okkur almennt við. Enda þekkist verðtrygging ekki á lánum heimilanna sem megin lánakostur í þessum löndum. Annars vegar vita stjórnvöld þeirra landa að ef verðtrygging yrði sett almennt á lán heimilanna myndu hagkerfi þeirra hrynja og aðalstjórntæki seðlabanka þeirra ekki virka. Hins vegar myndi almenningur í þessum löndum ALDREI láta bjóða sér verðtryggð lán til heimila með okurvöxtum þar ofan á.
Þetta er kjarni málsins, eins og var nánar rakið í fréttatilkynningu sem var upphaflega send fjölmiðlum 14. nóvember sl. áður en aðalmeðferð málsins var frestað af dómskerfinu.“
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/01/13/kaera-hefur-verid-send-til-mannrettindadomstols-evropu-vegna-gengistryggdra-lana/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    Einfaldara og fljótlegra að uppfæra ökuskírteini

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Styrkur til fyrrverandi fósturbarna í Bakkakoti

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Skjald­borg um sjöfaldan veikindarétt

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Gæsluvarðhald vegna andláts karlmanns í Kópavogi

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?