• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Mafían sem skiptir eignum þjóðarinnar til helminga

,,Ég segi lækkum skatta á venjulegt fólk og hækkum á þá sem hafa notað landið sem tekjuauðlind"

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
30. mars, 2021
0 0
Glúmur tilkynnir framboð sitt til Alþingiskosninga

Glúmur Baldvinsson

,,Við höfum búið við óttann hér of lengi og þess vegna lútum við höfði fyrir Sjálfstæðisframsóknarflokknum”

Ég spyr. Hvað hefur Sjálfstæðisframsóknarflokkurinn nokkurn tímann gert fyrir þessa þjóð? Mafían sem skiptir eignum þjóðarinnar til helminga. Halldór og Davíð skiptu bönkunum á milli sín. Þetta gerðist ekki í gær. Þetta byrjaði strax í upphafi fullveldisins og væntanlega fyrr.

Glúmur Baldvinsson gefur kost á sér í komandi Alþingiskosningum fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn og skrifar um þjóðmál

Af hverju eru þetta tradijsónalt stærstu flokkar landsins? Jú af því þeir drottnuðu og deildu og héldu í alla strengi og ólu á ótta svo venjulegur maður þurfti að leggjast á bæn til að fá lífsviðurværi í þessu litla landi. Og halda menn að þetta sé liðin tíð? Ó nei. Bendið mér á einn mann (kvenmann eða karlmann) sem ekki þarf flokksskírteini til að fá vinnu hér í dag? Ég skora á þann mann að stíga fram.

Við höfum búið við óttann hér of lengi og þess vegna lútum við höfði fyrir Sjálfstæðisframsóknarflokknum sem skaffar okkur vinnu og lífsviðurværi á kostnað valdsins sem var stolið.

Og svo þegar XD segir lækkum skatta?

Hvaða skattar hafa verið lækkaðir og hvað gerum við við skattinn? Hvernig stendur á því að heilbrigðis og menntakerfi Íslands er í molum? Af því skattfénu er ekki varið vel. Því er sólundað í vitleysu en aðallega til að viðhalda völdum Sjálfstæðisframsóknaríhaldsins.

Ég segi lækkum jú skatta á venjulegt fólk og hækkum á þá sem hafa notað landið sem tekjuauðlind. Er öllum sama hér um að einhverjir kallar og kellingar hringinn í kringum landið sleppi við að borga rentu af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar sem dugar ekki einu sinni fyrir landhelgisgæslu geti bara hent milljörðum af stolnu fé í börnin sín og afkomendur? Er það allt í lagi?

Og svo spyr fólk mig af hverju ég ætla í framboð? Og hvort ég sé ekki krati? Jú ég er krati en ekki vinstribullari sem heldur að það sem brenni mest á þjóðinni sé kynrænt sjálfstæði og vegan grænfæði. Ég er krati og heimta réttlæti. Þess vegna er ég að bjóða mig fram því ég get eytt restinni af ævi minni í að röfla um þetta. Ég bara nenni því ekki.

Ég vil gera eitthvað í þessu. Þess vegna býð ég mig fram og mér alveg sama hvort fólk kýs mig eða ekki. Ég get þó alltaf sagt við sjálfan mig sáttur að ég alla vega reyndi. Meira en margur gerði. That´s it.

Deila126TweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Umræða

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Á bráðamótöku með stunguáverka eftir líkamsárás

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Brýnt að jafna kynjahlutföll á skipum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Así vill koma í veg fyrir þrælahald og mannsal á íslenskum farskipum

    46 deilingar
    Deila 46 Tweet 0
  • Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

    474 deilingar
    Deila 474 Tweet 0
  • Óréttlæti og valdníðsla

    43 deilingar
    Deila 43 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?