Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag má búast við hinu ágætasta veðri. Einhverjir voru vongóðir um að sólin myndi skína glatt í gær en almennt eru skýjahuluspár minnst ábyggilegu spáafurðir sem við veðurfræðingar vinnum með. Samt sem áður hafa þær batnað stórlega á síðustu árum, en almennt standa þær sig best þegar skil nálgast landið en eins og í gær ekkert sérstakar þegar langt er í næstu lægð og eða skil. Stundum vantar aðeins herslumuninn að sólin nái að bræða af skýjahuluna og til marks um það þá mældust rúmlega 3 klukkustunda sólskin á sólarmæli Veðurstofunnar í gær. Svo má alveg gera sér vonir að dagurinn í dag geri enn betur.
Veðuryfirlit
Yfir NA-Grænlandi er 1034 mb hæð og frá henni teygir sig hæðarhryggur til Skotlands. Um 400 km A af Hvarfi er 1006 mb lægð, sem þokast NV og grynnist.
Veðurhorfur á landinu
Suðlæg átt, víða 3-8 m/s, en hvassari syðst í fyrstu. Víða bjartviðri, en smá él við A-ströndina. Þykknar upp V-til um kvöldið.
Skúrir S- og V-lands á morgun, en slydduél eða él fyrir norðan, annars úrkomulítið.
Hiti 1 til 6 stig á S-verðu landinu að deginum, en vægt frost annars staðar. Víða næturfrost.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 3-8 m/s og skýjað með köflum. Skýjað á morgun og stöku skúrir. Hiti 2 til 5 stig að deginum, en líkur á næturfrosti.
Spá gerð: 30.03.2022 04:00. Gildir til: 31.03.2022 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálitlar skúrir eða él, en lengst af þurrt fyrir austan. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að deginum.
Á föstudag:
Hæg suðlæg átt og dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að mestu A-lands. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á laugardag:
Norðlæg eða breytileg átt og dálítil él fyrir norðan, en suðvestlæg att og úrkomulítið syðra. Vægt frost NA-til, en annars 1 til 7 stiga hiti, mildast S-lands.
Á sunnudag:
Gengur í sunnanátt með rigningu og hlýnandi veðri, en snjókoma og vægt frost á NA- og A-landi.
Á mánudag:
Norðaustlæg átt og él fyrir norðan og austan en þurrt syðra og milt að deginum.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir austlæga átt með vætu sunnan- og vestantil, en þurrt að kalla um landið NA-vert. Heldur hlýnandi veður.