Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum ásamt lögregluyfirvöldum í Bandaríkjunum og Portúgal og Europol.
Vegna þessa komu starfsmenn bandarísku alríkislögreglunnar til Íslands, en tekin var niður vefsíðu, sem var hýst hérlendis, í þágu rannsóknar á svikastarfsemi með rafmynt og peningaþvætti. Aðgerðin gekk vel, en við hana naut lögreglan enn fremur aðstoðar þriggja í íslenskra fyrirtækja.
Málið féll undir að vera misnotkun á íslenskum innviðum og var þetta liður í að verja þá. Enginn var handtekinn í aðgerðunum á Íslandi, en einn í Bandaríkjunum og annar í Portúgal. Lesa má nánar um málið á heimasíðu bandarískra yfirvalda:
Umræða