Rúmlega hundrað mál skráð hjá lögreglu frá kl. 17:00-05:00
Mjög mikið var að gera í nótt og voru rúmlega hundrað mál skráð hjá lögreglu frá klukkan 17:00-05:00. Málin voru af ýmsu tagi og oftar en ekki þar sem fólk var undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna.
Nokkur heimilisofbeldismál komu inn á borð lögreglu, einnig líkamsárásir, hávaðakvartanir, aðstoð við borgarana vegna ástands, slys og óhöpp og svo voru níu ökumenn teknir fyrir ölvunar og eða fíkniefnaakstur.
Tíu manns voru vistaðir í fangaklefum á tímabilinu frá 17:00-05:00
Umræða