Dómsmálaráðherra skipaði Kristínu Þórðardóttur sem sýslumann á Suðurlandi
Dómsmálaráðherra hefur skipað f.v. oddvita Sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi, Kristínu Þórðardóttur til að vera sýslumaður á Suðurlandi frá 1. ágúst nk.
Kristín Þórðardóttir leiddi lista Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra í sveitarstjórnarkosningunum 2014 og var þá sveitarstjóraefni listans. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, skipar tólfta sæti listans.
Kristín skipaði efsta sætið hjá Sjálfstæðisfélaginu Kára í Rangárþingi Eystra. Átta aðilar sóttu um embættið eins og Fréttatíminn hefur áður greint frá. Þeir voru :
Andri Björgvin Arnþórsson, lögfræðingur
Björn Hrafnkelsson, fulltrúi og staðgengill sýslumanns
Helgi Jensson, aðstoðarsaksóknari hjá lögreglustjóranum á Austurlandi
Kristín Þórðardóttir, settur sýslumaður á Suðurlandi
Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson, lögfræðingur
Þuríður Árnadóttir, sviðsstjóri/staðgengill sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu
Þuríður Björk Sigurjónsdóttir, héraðsdómslögmaður
Framboðslisti Sjálfstæðisfélagsins var svohljóðandi :
1. Kristín Þórðardóttir, fulltrúi sýslumanns/lögreglustjóra og sveitarstjórnarmaður
2. Birkir Arnar Tómasson, bóndi og verktaki
3. Guðmundur Jón Viðarsson, bóndi og atvinnurekandi
4. Heiða Björg Scheving, atvinnurekandi og fyrrverandi leikskólastjóri
5. Sigríkur Jónsson, hrossabóndi
6. Víðir Jóhannsson, málarameistari og ferðaþjónustubóndi
7. Harpa Mjöll Kjartansdóttir, klæðskera-og kjólasveinn, starfsmaður Leikskólans Arkar
8. Jón Óskar Björgvinsson, húsasmiður og nemi
9. Svavar Hauksson, símvirki og stjórnarmaður í félagi eldri borgara
10. Katrín Óskarsdóttir, nuddari og myndlistarmaður
11. Kristján Friðrik Kristjánsson, iðnfræðingur
12. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra
13. Ingibjörg Þorgilsdóttir, fyrrv. starfsmaður SS á Hvolsvelli
14. Elvar Eyvindsson, bóndi og sveitarstjórnarmaður
Kristín Þórðardóttir var jafnframt valin sveitarstjóraefni listans.
Kristín er fædd hinn 6. september 1979. Hún lauk lögfræðiprófi frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2006.
Kristín starfaði eftir útskrift sem fulltrúi og staðgengill sýslumanns og lögreglustjóra á Hvolsvelli en frá árinu 2015 hefur hún gegnt því starfi á sameinuðu embætti sýslumanns á Suðurlandi.
Hún hefur verið settur sýslumaður á Suðurlandi frá 1. maí 2017.
Sambýlismaður Kristínar er Friðrik Erlingsson og eiga þau þrjú börn.